fasteignasölur.is
Grænatún 20A
1 af 47

Um eignina

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Um er að ræða nýlegt parhús ásamt innbyggðum bílskúr á tveimur hæðum við Grænatún 20A í Kópavoginum. Birt stærð skv. HMS: neðri hæðin er 76,4 fm, efri hæðin er 63,4 fm og bílskúrinn 24,5 fm eða samtals: 164,3 fm. Mjög gott skipulag - aukin lofthæð - gólfhiti - tvö baðherbergi - yfirbyggð verönd

Nánari lýsing eignar neðri hæðar: Komið er inn í mjög rúmgóða forstofu, stór fataskápur. Frá forstofu tekur við parketlagður gangur. Á neðri hæðinni er snyrting með upphengdu salerni, útgengt út á lóð. Innaf gangi er þvottahús með innréttingu með miklu skápaplássi og hillum og innaf þvottahúsinu er flísalagður bílskúr sem er að hluta til nýttur undir herbergi, sjálfvirkur hurðaopnari. Sjónvarpsherbergi með útgangi út á verönd. Mjög fallegt eldhús með glæsilegri innréttingu frá Fríform sem nær alveg upp í loft, mjög stór eyja úr kvartstein. Parketlögð borðstofa. Frá þessu rými er gengið út á yfirbyggða verönd sem er að sögn seljanda um 9 fm og í því rými er gólfhiti og þaðan er unnt að ganga út á verönd og þaðan út í bakgarð.    

Nánari lýsing efri hæðar: Teppalagður stigi upp á efri hæðina og þar er komið inn á parketlagðan gang. Mjög rúmgóð þrjú svefnherbergi og er gengið út á svalir frá tveimur herbergjanna. Á svölunum sem snúa til suður er heitur pottur. Flísalagt stórt baðherbergi með marmara flísum á veggjum, neðri skápur, Walk-in sturta, upphengt salerni og gluggi. Útgengt frá baðherbergi. Gólfefni: parket og flísar að mestu á gólfum fyrir utan stiga á milli hæða en þar eru teppi.  

Arkitekt hússins er Einar V. Tryggvason arkitekt. 

Húsið er vel staðsett í vinsælu hverfi á grónum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu eins og leik- og grunnskóla, verslanir ásamt fallegu útivistasvæði í Fossvogsdalnum.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
149.900.000 kr.912 þ./m²
+68,4% á 5 árum
9. júní 2021Fyrsta sala
89.000.000 kr.542 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Grænatún 20A

200 Kópavogur
149.900.000 kr.912 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2020TegundRað-/parhúsStærð164,3 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF25104855Fasteignamat131.700.000 kr.Brunabótamat102.590.000 kr.
Skráð hjá
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 47 myndir

Upp ↑