fasteignasölur.is
Húnabraut 16
1 af 34

Um eignina

RE/MAX og Sigrún Matthea lgf., kynna:  Fallegt fjölskylduhús Húnabraut 16, Blönduósi, húsið hefur fengið gott viðhald. Þaðan er stutt í ýmsa verslun og þjónustu. 
Á jarðhæð eru eldhús, búr, stofa / borðstofa, 3 svefnherbergi, baðherbergi og stórt þvottaherbergi.  Gengið er úr þvottaherbergi í bílskúr, byggð var við bílskúrinn góð geymsla úr geymslu er gengið út á timburverönd sem er bakvið hús við bílskúr. Einnig er timburverönd austanmegin við hús. 
Á efri hæð eru 3 svefnherbergi (úr einu gengið út á svalir) og salerni. Geymslur eru undir súð. Stór garður í rækt er við húsið.

Eign með mikla möguleika, eign sem vert er að skoða. 
Bóka skoðun     Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Matthea lgf.  í síma 695-3502,  email: sms@remax.is
Viltu fá söluyfirlit núna, smelltu hér

Nánari lýsing eignar.
Neðri hæð: 

Forstofa:  Fataskápur, flísar á gólfi. 
Hol / Gangur:  Fataskápur, viðarparket á gólfi. 
Eldhús:  Hvít innrétting, gott skápa og vinnupláss, á milli efri og neðri skápa eru Fibo Trespo extra plötur,  borðkrókur,  lítið búr er inn af eldhúsi. 
Búr:  Lítið búr er inn af eldhúsi, hillur.
Stofa / Borðstofa: Bjart og rúmgott rými, viðarparket á gólfi. Hringstigi upp á efri hæð er í borðstofu. 
Svefnherbergi I:  Viðarparket á gólfi (forstofuherbergi) 
Svefnherbergi II og III:  Björt rými, opið á milli herbergja, fremra herbergi nýtt sem sjónvarpsherbergi, viðarparket á gólfi. 
Baðherbergi: Innrétting m/ handlaug, salerni, baðkar m/ sturtutækjum, flísar á gólfi. 
Þvottaherbergi:  Rúmgott rými, flísar á gólfi, gengið úr þvottaherbergi í bílskúr, útgengi á verönd bakvið hús úr þvottaherbergi. 
Bílskúr:  Nýttur í dag sem tómstundaherbergi (auðvelt að breyta aftur),  inn af bílskúr er stór geymsla, útgengt úr geymslu út á verönd bakvið hús. 
Efri hæð: 
Stigapallur:  Harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi I:  Bjart rými, harðparket á gólfi, útgengi út á svalir. 
Svefnherbergi II: Bjart rými, harðparket á gólfi. Lokað geymslupláss undir súð. 
Svefnherbergi III: Bjart rými, harðparket á gólfi. 
Salerni:  Lítil innrétting m/ handlaug, salerni, geymsluskápur, og inn af honum geymslu rými undir súð, harðparket á gólfi. 
Endurbætur að sögn eigenda: 
Þak á húsinu var endurnýjað árið 2019-2022
Nýtt járn á bílskúr árið 2020
Ný öndun/ loftunarrör á bílskúr árið 2020 
Gluggar og gler á efri hæð endurnýjaðir árið 2018 
Ofnalagnir endurnýjaðar árið 2018 
Ofnagrind í bílskúr árið 2018 
Viðarparket á neðri hæð endurnýjað. 
Eldhúsinnrétting endurnýjuð árið 2013
Neysluvatnslagnir / utanáliggjandi lagnir endurnýjaðar árið 2012



Upplýsingar um eigina veitir Sigrún Matthea lgf.  í síma   695-3502  eða  á netfang  sms@remax.is
Ert þú í  söluhugleiðingum / fasteignahugleiðingum ?  og ekki búinn að fá verðmat á eignina þína  verðmat  er án kostnaðar og skuldbindingar fyrir þig,  velkomið að vera í sambandi við mig netf. sms@remax.is eða sími 695-3502 
Viltu panta verðmat á þína eign   smelltu hér 
Í lögum um fasteignakaup lög nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á  að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.  

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800,- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar.  Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m/vsk.  
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Matthea í síma 695-3502 , sms@remax.is


 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
59.900.000 kr.278 þ./m²
+263,0% á 19 árum
26. febrúar 2008Fyrsta sala
16.500.000 kr.76 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Húnabraut 16

540 Blönduós
59.900.000 kr.278 þ./m²
Einbýlishús6 svefn · 2 bað
Byggingarár1959TegundEinbýlishúsStærð215,8 m²Herbergi7InngangurMargir inngangarBílskúrFasteignanúmerF213696310Fasteignamat48.700.000 kr.Brunabótamat96.850.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑