fasteignasölur.is
Fjarðarstræti 2
1 af 23

Um eignina

Rúmgóð og mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi við Fjarðarstræti 2 á Ísafirði. Stórar og góðar svalir með fallegu útsýni. Geymsla með glugga. Mjög falleg eign og snyrtileg sameign. 

Eignin er skráð í Þjóðskrá íslands alls 80,5 fm. og þar af er geymsla 12,1 fm. 

Í íbúðinni er hjónaherbergi, eldhús, góð stofa og borðstofa, baðherbergi og sérgeymsla í kjallara og góð sameign.


Nánari lýsing:
Hol með fatahengi og parket á gólfi.
Eldhús með góðri nýlegri innréttingu, tvennir ofnar í vinnuhæð, helluborð, flísar á milli skápa og parket á gólfi.
Stofa rúmgóð með parketi á gólfi, útgengt út á stórar suðursvalir, frábært útsýni yfir bæinn.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, snyrtileg innrétting, upphengt salerni og flísalagðir veggir og gólf. 
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins með glugga. Í sameign er salerni og vaskur. 

Sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð er með sitt tengi og þurrkherbergi í kjallara 
Hjóla og vagnageymsla í kjallara hússins. . Öll sameign er mjög snyrtileg.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
36.900.000 kr.458 þ./m²
+57,0% á 5 árum
16. mars 2021Þinglýstur kaupsamningur
23.500.000 kr.292 þ./m²
+119,6% á 4 árum
4. september 2017Fyrsta sala
10.700.000 kr.121 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Fjarðarstræti 2

400 Ísafjörður
36.900.000 kr.458 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1973TegundFjölbýlishúsStærð80,5 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF21194374Fasteignamat36.900.000 kr.Brunabótamat40.200.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑