fasteignasölur.is
Lyngás 1
1 af 62

Um eignina

Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega falleg og björt 4ra herbergja íbúð í lyftuhúsi með stæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin er á 3.hæð með fallegu útsýni til vesturs. Sérinngangur af svölum er að íbúðinni. Eignin er fallega innréttuð með ljósum vönduðum innréttingum og fallegu harðparketi á gólfum, ljósar flísar eru á gólfum í votrýmum. Skipulag íbúðar: forstofa, alrými (eldhús, borðstofa og setustofa, baðherbergi, 3 svefnherbergi og sér þvottaherbergi. Falleg eign i góðu fjölbýlishúsi þar sem stutt er i skóla, íþróttastarf Stjörnunar í Ásgarði, verslanir og alla helstu þjónustu. 

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 99 m2 þar af er geymslan 6,9 m2.

Nánari lýsing:
Forstofa:
Komið er inn í forstofu með harðparketi og góðum fataskáp. 
Eldhús: Þegar komið er inn í alrýmið er eldhús strax á hægri hönd. Innrétting er í U með efri og neðri skápum í ljósum lit. Mjög gott skápapláss er í innréttingunni og mikið vinnupláss. Harðparket er á gólfi.
Stofa + borðstofa: Stofu rýmið er mjög bjart með stórum gluggum sem snúa í vestur. Gengið er út á svalir sem ná útsýni. Harðparket er á gólfi í stofunni. 
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er bjart með góðum fataskáp og harðparket á gólfi.
Barnaherbergi nr.1: Barnaherbergi er rúmgott með fataskáp og harðparket á gólfi.
Barnaherbergi nr.2: Barnaherbergi er með fataskáp og harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi' er flísalagt í hólf og gólf með fallegum ljósum flísum. Sturta er á baðherberginu. Góð innrétting er undir vaski og á vegg við hliðina á vaskinum. Handklæðaofn er á vegg við sturtuna. 
Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi er innan íbúðar með flísum á gólfi og góðum hillum. 
Sérgeymsla fyrir íbúð fylgir stærð 6,9 fm. 
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæð
i fylgir íbúð í lokaðri bílageymslu.
 
Vel staðsett eign í vinsælu og góðu hverfi í Garðabæ. Stutt í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttastarf, sundlaug, matvöruverslanir ofl.
sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn og góðum göngustígum.

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hóml lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Lyngás 1

210 Garðabær
79.900.000 kr.807 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2015TegundFjölbýlishúsStærð99 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF23176241Fasteignamat85.650.000 kr.Brunabótamat63.300.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 62 myndir

Upp ↑