fasteignasölur.is
Laugavegur 168
1 af 20

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala og Jason Kristin Ólafsson fasteignasli kynnir: Laugavegur 168 íbúð 205 - Glæsilegar útsýnisíbúðir í fjölbreyttum stærðum við Heklureit þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og nýjustu Siemens tækjum. Gólfsíðir gluggar hleypa mikilli náttúrulegri birtu inn og auka útsýni. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Íbúðir á efri hæðum hafa eigin þakgarða en sameiginlegur þakgarður verður einnig fyrir alla íbúa í húsinu ásamt fallegum inngarði. Frábær staðsetning í miðborginni en þó fjarri skarkala miðbæjarins.

Íbúð 205 er rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í 8. hæða húsi, með öllum þægindum sem hægt er að hugsa sér. Samtals 83,7 fermetrar. Svalir til suðurs (7,4 fm) og norðurs (7,1 fm) og skiptist íbúðin í 2 svefnherbergi, stofu, eldhúsi og baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Gólfhiti er í íbúðinni. Sérgeymsla (nr 13) fylgir að stærðinni 6,4 fm. innréttingaþema er Bjarmi.

Heimasíða

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. 
Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga. 
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut. 
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af væntanlegu brunabótamati

Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 / jason@betristofan.is
Þórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232 / thorhallur@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir sími 899 5533 / gudbjorg@betristofan.is
Hlynur Bjarnason, sími 697 9215 / hlynur@betristofan.is
Dagrún Davíðsdóttir, sími 866 1763 / dagrun@betristofan.is
Atli S. Sigvarðsson, sími 899 1178 / atli@betristofan.is
Páll Þórólfsson, sími 893 9929 / pall@betristofan.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Laugavegur 168

105 Reykjavík
89.900.000 kr.1.074 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð83,7 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF252974515Fasteignamat53.150.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑