fasteignasölur.is
Skagabraut 42
1 af 59

Um eignina

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Fallegt 245,4 fm einbýlishús á tveim hæðum og sérstæðan bílskúr. Íbúðarrými er 202 fm og bílskúrinn er 43,4 fm. Einnig er ca 20 fm sólskáli sem telur ekki í heildarfermetratölu húsins. Lóðin sjálf er rúmgóð eða 1.500 fm og hefur verið velviðhaldið. Eignin býður uppá ýmsa möguleika s.s. að búa til litla íbúð í bílskúr, einnig var íbúð á efri hæð á sínum tíma og því vatnslagnir ennþá til staðar fyrir þá sem hafa áhuga á aukatekjum.

SELJENDUR SKOÐA SKIPTI Á MINNI EIGN INNAN SVEITARFÉLAGSINS.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is

Neðri hæð:
Forstofa er með flísum á gólfi og upphengi.
Hol er með parketi á gólfi ásamt skáp undir stiga.
Stofan er tvöföld og er með harðparketi á gólfi og það er útgengt á teppalagðan sólpall með rennihurðum á rúmgóða verönd.
Eldhús er með flísum á gólfi ásamt viðarinnréttingu og harðparket er á borðstofu
Baðherbergi er með flísar á gólfi og filmu yfir eldri flísum á veggjum, sturtuklefi, wc, innrétting í kringum vask og gluggi.
Þvottahús er með flísum á gólfi, upphengi og þaðan er útgengt á malbikað bílaplan.
Geymsla/búr er með parket á gólfi og hillum.
Stigi á efri hæð er teppalagður.

Efri hæð:
Þegar komið er á efri hæð tekur við rúmgott parketlagt hol með skápum og útgengi á suðursvalir.
Herbergin eru 4 og eru öll frekar rúmgóð með parketi á gólfi og skápar í tveim herbergjum.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og filmu yfir eldri flísum, handklæðaofn, wc, skápar undir og yfir vask, baðkar og gluggar
Geymsla í risi er rúmgóð.

Bílskúr er sérstæður og skjólveggur tengir aðalbyggingu við bílskúr, þar er steinn á gólfi og klætt yfir með plastflísum, rafmagn í hurð, heitt og kalt vatn, gluggar, ásamt geymslurými.
 

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · STOFN - Fasteignasala ehf.
84.700.000 kr.345 þ./m²
+84,1% á 5 árum
18. janúar 2022Fyrsta sala
46.000.000 kr.187 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skagabraut 42

251 Suðurnesjabær
84.700.000 kr.345 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1957TegundEinbýlishúsStærð245,4 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20960215Fasteignamat80.950.000 kr.Brunabótamat104.800.000 kr.
Skráð hjá
STOFN - Fasteignasala ehf.
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími511-0900 / 661-7788

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 59 myndir

Upp ↑