Um eignina
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.
Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum með stórum bílskúr og frábæru útsýni. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, borðstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og fokheldri neðri hæð. Eignin hefur verið endurnýjuð að hluta eins og baðherbergi, forstofa, vatnslagnir og frárennsli. Einnig var þak málað og yfirfarið og timburpallur byggður framan við eignina þar sem áður var inngangur eignarinnar. Undir palli er köld geymsla sem gengið er inn í á neðri hæð. Neðri hæð eignarinnar hefur verið gerð fokheld og býður upp á marga möguleika.
Eldri hluti eignarinnar er á tveimur hæðum en byggt var við húsið árið 1979. Viðbyggingin samanstendur af stofu, forstofu og baðherbergi.
Forstofa: hefur verið endurnýjuð með flísum á gólfi og ágætis skápaplássi. Hiti er í gólfi. Forstofa er hluti af viðbyggingu.
Eldhús: er með ljósri innréttingu með góðu skápaplássi og dökkri borðplötu. Parket er á gólfi.
Stofa: er mjög stór með góðu gluggarými og útgang út í garð. Parket er á gólfi. Stofa er hluti af viðbyggingu.
Borðstofa: er rúmgóð með góðu gluggaplássi og útsýni yfir fjallagarðinn.
Svefnherbergi: eru tvö á efri hæð misstór með parket á gólfi.
Baðherbergi: hefur verið endurnýjað með flísum á gólfi, walk in sturtu, vask, innréttingu, hanklæðaofn og upphengdu salerni. Hiti er í gólfi og vifta í útvegg.
Þvottahús: er á neðri hæð með steyptu máluðu gólfi og vask. Opnanlegur gluggi er í þvottahúsi.
Neðri hæð: hefur verið gerð fokheld og því margir möguleikar í uppbyggingu. Mikið gluggapláss er á neðri hæð.
Bílskúr: er 34,6m2 með steyptu gólfi, rafdrifinni bílskúrshurð og inngangshurð. Stórir gluggar eru á suðurhlið.
Garður: lóðin nær upp að Hólavegi (næstu götu að ofan) og er grasilögð. Timburpallur er í skjóli sunnan við bílskúr.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Hlíðarvegur 13
Staðsetning
Allar 35 myndir
Upp ↑

































