fasteignasölur.is
Týsnes 14a eign 114
1 af 12

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Týsnes 14a eignarhluti 114 - Endabil / norðvestur 
Nýlegt geymsluhús í norðvestur enda með vel innréttuðu millilofti - skráð stærð 76,7 m³ þar af er milliloftið 24,4 m²

Eignin er að stærstum hluta eitt opið rými með góðri lofthæð og stórum gluggum á langhliðinni. Innst í öðru horninu er snyrting. 
Timbur stigi eru upp á milliloftið sem er skráð 24,4 m² að stærð. Þar er harð parket á gólfum, lítil eldhúsinnrétting, baðherbergi með sturtuklefa og alrými með stórum gluggum og hurð út á vestur svalir. 
Bílaplan er malbikað og snjóbræðsla er um 3 metra út frá útveggjum.

Helstu mál skv. teikningum, 
* Breidd 5,27 m
* Lengd 9,57 m
* Innkeyrsluhurð um 3,2 m á breidd og um 3,8 m á hæð.

Burðarvirki hússins eru steinsteyptar undirstöður/gólf ásamt timburvirki (límtré) í veggjum og þaki.
Útveggir eru klæddir með 80mm (micro áferð að utan/panill að innan) samlokueiningum með PIR kjarna. 
Allir léttir innveggir (kringum snyrtingu) eru gerðir úr 100mm samlokueiningum. Milliveggir milli rýmisnúmera eru 100mm samlokueiningar með harðpressaðri steinull og eru þær samkv. EI60.
Þak er klætt með 100/145mm (trapiza) PIR samlokueiningum er festast á límtrésbita. 
Hitaveita: Ein hitaveitugrind/aflestrarmælir er fyrir allt húsið og er staðsetning mæla í sameiginlegu tæknirými. 
Raflagnir: Aðaltafla rafmagns og einn aflestrarmælir ásamt frádráttarmælum eru staðsett í sameiginlegu tæknirými en sér greinatafla er í eignarhlutanum.  

Á eigninni hvílir vsk-kvöð - Auglýst söluverð er tiltekið með vsk-kvöð. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Týsnes 14a eign 114

603 Akureyri (utan Glerár)
34.900.000 kr.455 þ./m²
Atvinnuhúsnæði2 bað
Byggingarár2025TegundAtvinnuhúsnæðiStærð76,7 m²InngangurSérinngangurFasteignanúmerF25332963Fasteignamat28.800.000 kr.Brunabótamat27.400.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 12 myndir

Upp ↑