fasteignasölur.is
Stuðlaberg 16
Opið hús 13. sept. kl. 15:00–15:30
1 af 184

Um eignina

RE/MAX og Guðrún Þórhalla löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallegt einbýlishús við Stuðlaberg 16, 221 Hafnarfirði.
Fallegt og vel staðsett fjölskylduhús í rólegri götu í Setberginu með fimm svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og fallegum garði með viðarpalli og heitum potti. Góð og skemmtileg birta flæðir í gegnum eignina frá þakglugga.
Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 205,7 fm, þar af 181,2 fm íbúðarrými og 24,5 fm bílskúr.
Hér getur þú skoðað eignina í 3D mæli með að skoða.

Frekari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is

 
NÁNARI LÝSING
Forstofa/gangur
Flísalagt gólf og mjög rúmgóður fataskápur sem er innbyggður.
Gestasnyrting
Flísar á gólfi, vaskur og klósett.
Herbergi I(vinnirými)
Rúmgott herbergi inn af forstofu með geymslu þar inn af. Léttur veggur skilur herbergi og geymslu.
Stofa / borðstofa
Gengið er niður tröppur í stofu/borðstofu og eldhús rými. Stofan er björt og falleg með arni. Parket á gólfi.
Eldhús
Flísalagt gólf og falleg upprunaleg viðar innrétting með steinborðplötum. Bakaraofn í vinnuhæð. Borðstofa í samliggjandi rými.
Sólstofa, gengið er út á fallegan pall úr þessu rými, flísar á gólfi.
Baðherbergi
Flísar á gólfi og veggjum. Grá viðar innrétting með hvitri borðplötu,  handklæðaofn, sturta og upphengt salerni. 
Herbergi II
Dúkur á gólfi og fataskápur.
Herbergi III
Rúmgott herbergi með dúk á gólfi.
Hjónaherbergi
Bjart og rúmgott, dúkur á gólfi og fataskápur.
Herbergi IV (ris)
Gengið er upp hringstiga í gott herbergi með parketi og glugga.
Geymslurými: háaloft er nýtt sem geymslurými, gott aðgengi að því er frá svefnherbergisgangi.
BÍLSKÚR / AÐSTAÐA
Rúmgóður bílskúr með bílskúrshurð. Rafmagnshurðaopnari, heitt og kalt vatn.
Þvottaaðstaða er í bílskúrnum í dag.
 
EIGN / LÓÐ - uppl. um eign:
Húsið er timburhús.  Skemmtileg og falleg birta flæðir í gegnum eignina út frá þakglugga. 
Hellulögð innkeyrsla með rými fyrir tvo bíla og með snjóbræðslu.
Gróinn og fallegur garður.
Stór timburverönd á hlið og baklóð hússins með heitum potti. Útgengt er á veröndina úr sólstofu.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2007 og skápar í forstofu.
Gler og listar endurnýjað í þakglugga fyrir ca. 5 árum. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali
Sími: 820-0490
Netfang: gudrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Stuðlaberg 16

221 Hafnarfjörður
149.500.000 kr.727 þ./m²
Fjölbýlishús5 svefn · 2 bað
Byggingarár1988TegundFjölbýlishúsStærð205,7 m²Herbergi5InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF207952715Fasteignamat141.650.000 kr.Brunabótamat108.550.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 184 myndir

Upp ↑