Um eignina
Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á gólfum og fatahengi.
Stofa: Rúmgóð og björt með innfelldri lýsingu. Parket á gólfi, útgengt út á lóð (væntanlega verönd)
Eldhús: Falleg dökk innrétting með góðu skápaplássi.Vönduð eldhústæki og granít borðplata sem nær upp á vegg. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott herbergi, parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi: Bjart og fallegt herbergi, parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, upphengt salerni, vönduð innrétting með grantí borðpötu, baklýstur spegill. Walk-in sturta með glerhlið/sturtugleri.
Bílskúr: Vegleg innrétting með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara í þægilegri vinnuhæð. Vaskur og gott skápapláss. Rafdrifin bílskúrshurð.
Annað:
Útgengi úr stofu út á lóð og framtíðar pall. Vísar til suðurs og nýtur sólar mestan hluta dagsins sem og óhefts útsýnis til fjalla.
Örstutt er á golfvöllinn sem og í sjósundsaðstöðu Hólmara
Gólfhiti er á öllu húsinu.
Búið er að leggja lagnir fyrir snjóbræðslu í plani.
Búið er að leggja fyrir hleðslustöð.
Eignin er með staðsteyptum sökklum, staðsteypt gólfplata, krosslímdar timbureiningar í veggi og þak, einangrað og klætt með steinplötum
Hér er á ferð frábærlega staðsett , vandað og vel skipulagt parhús sem býður upp á ýmsa möguleika.
Frábær tækifæri sem fyrsta eign eða fyrir þá sem vilja minnka við sig og komast í nýtt húsnæði á einni hæð í Hólminum fagra.
Hafðu samband við Bjössa og bókaðu skoðun því sjón er sögu ríkari!
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Imbuvík 1a
Staðsetning
Allar 126 myndir
Upp ↑




























































































































