fasteignasölur.is
Jörundarholt 100
1 af 45

Um eignina

***Jörundarholt 100 - AKRANESI***

Prima fasteignasala og Ólafur Sævarsson lögg.fasteignasali kynna: Mjög svo gott 155,9fm einbýlishús að meðtöldu 40fm bílskúr. 
Eignin skiptist í andyri, eldhús, stofu sem og borðstofu með útgang út á garð með Suður sólpalli með heitum potti. Hjónaherbergi og 2 barnaherbergi.  1 Baðherbergi og þvottahús.  


Staðsett í vinsælu hverfi þar sem er stutt á golfvöllinn og önnur útivistarsvæði (m.a. leikvelli).

Nánari lýsing.
Forstofa: Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa: Mynda bjart alrými. Frá stofu er útgengt útí garð. Nýlegt parket á gólfi.
Eldhús: Er með fallegri hvitri innréttingu og góðum tækjum. Mikið skápapláss. Innaf eldhúsi er þvottahús með glugga.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, baðkar og innrétting. 
Hjónaherbergi: Gott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Gott barnaherbergi með fataskápur og parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Barnaherbergi með parket á gólfi og fataskáp (Var áður þvottahús, með hurð út á lóð) Er innaf forstofu.
Þvottahús: Er staðsett inn af eldhúsi. Gluggi á þvottahúsi. 

Bílskúr: 40 fm er með rafmagni og er kyntur. 

Annað: Timburgólf í húsi með skrið kjallara undir. Í heild snyrtileg eign a barnvænum stað. 
Viðhald/endurbætur: Klæðning tekin af húsi og teknir úr galvaseraðirnaglar, klæðning negld aftur með rústfríum nöglum og skipt um vatnsbretti (1995-1997), Skipt um varmaskiptir (2011), húsið málað að utan 2020.
Gler endurnýjað eftir þörfum. Eldhús fært inn í alrými og sett upp ný innrétting sem og tæki. Endurnýjað parket á eigninni sem og innihurðar. Stór sólpallur með heitum potti nýlega smíðaður 2023.

Nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Sævarsson löggiltur fasteignasali / s.820 0303 / olafur@primafasteignir.is


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinn
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Prima fasteignasala ehf.
92.400.000 kr.593 þ./m²
+34,9% á 4 árum
18. nóvember 2022Fyrsta sala
68.500.000 kr.439 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Jörundarholt 100

300 Akranes
92.400.000 kr.593 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1980TegundEinbýlishúsStærð155,9 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF21032804Fasteignamat85.750.000 kr.Brunabótamat77.850.000 kr.
Skráð hjá
Prima fasteignasala ehf.
HeimilisfangSuðurlandsbraut 6, 108 ReykjavíkSími511-7030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 45 myndir

Upp ↑