fasteignasölur.is
Grásteinsmýri 2 - íbúð 305
1 af 37

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun auglýsir 2ja - 5 herbergja íbúðir í nýbyggingu við Grásteinsmýri 1, 225 Álftanesi. Um er að ræða 30 íbúðir, stærðir frá 63,2 fm - 144,8 fm. Allar íbúðir með bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Afhending íbúða er við kaupsamning. Fyrir þessar íbúðir er í boði allt að 20% eignahlutdeild ÖXAR20 sjá nánar hér, leitið nánari upplýsinga hjá sölumanni.

Íbúð merkt 305 - 4ra herbergja 120,4 fm íbúð á þriðju og efstu hæð með þrem svefnherbergjum og rúmgóðum svölum og fallegu útsýni. Rúmgott svefnherbergi og tvö minni barnaherbergi, baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, eldhús með stórri vinnueyju opið inn í borðstofu og stofu. Bílastæði í bílakjallara merkt B25. Virkilega vel skipulögð íbúð. Athugið að myndir af íbúðum eru tölvuteiknaðar og eiga ekki alltaf við allar íbúðir.

Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is


Nánari lýsing:
Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inn á sér þvottahúsi inn af forstofu.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Barnaherbergi eru tvö með skápum.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á svalir frá stofu, stór rennihurð.
Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt 8,3 fm geymslu.

Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum sem verða flísalögð. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign) 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.

Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Grásteinsmýri 2 - íbúð 305

225 Garðabær
106.000.000 kr.880 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð120,4 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF253469625Fasteignamat69.700.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑