fasteignasölur.is
Grettisgata 74
1 af 16

Um eignina

Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynnir góða, bjarta og vel skipulagða 72,6fm, 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í steinsteyptu húsi teiknuðu af Pjetri Ingimundarsyni að Grettisgötu 74, 101 Reykjavík. Fjórar íbúðir eru í húsinu, ein á hverjum palli. Fallegur, gróinn og sólríkur bakgarður fyrir aftan hús. Eignin skiptist í gang, baðherbergi, eldhús, 2 samliggjandi stofur (einnig hægt að nýta aðra stofuna sem svefnherbergi), svefnherbergi og geymslu innan íbúðar. Einnig fylgir hlutdeild í sameiginlegri geymslu í risi sem ekki er skráð í birtri fermetratölu eignarinnar. Stigagangur var tekinn í gegn í lok árs 2019 - skipt um teppi ásamt því að mála alla veggi, loft, lista og hurðar. Frábær staðsetning í miðborginni með alla helstu þjónustu, verslun, sundhöll Reykjavíkur, fjölbreytt úrval af kaffi- og veitingahúsum innan seilingar. Þá eru skólar á öllum stigum í nágrenninu.

Fyrir frekari upplýsingar eða bókun á skoðun hafið samband við Hreiðar Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Eignin Grettisgata 74 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-8269, birt stærð 72.6 fm.

Nánari lýsing:
Gangur: Flísalagður. Tengir saman öll rými íbúðar. Fatahengi á gangi.
Eldhús: Falleg og vel með farin upprunaleg innrétting með efri og neðri skápum ásamt borðkrók við glugga.
Baðherbergi: Ljósar flísar á gólfi og veggjum. Sturtuklefi, klósett ásamt viðarborðplötu með vask, spegill fyfir ofan vask.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa. Hurðarop úr stofu inn í annað svefnherbergi eignarinnar, einnig hægt að nýta sem 2 samliggjandi stofur.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott. Hægt að ganga inn í herbergi bæði af gangi og úr stofu.
Svefnherbergi II: Mjög rúmgott. Gengið inn af gangi.
Geymsla: Innan íbúðar. Einnig hlutdeild í sameiginlegri geymslu í risi.

Þvottahús: Sameiginlegt í kjallara. Sértengill fyrir hverja íbúð.

Garður: Sameiginlegur gróinn og sólríkur garður til suðurs.

Fallega, vel skipulögð og sjarmerandi 3 herbergja íbúð á vinsælum stað í miðborginni með alla helstu þjónustu, verslun, menningu og skólum á öllum stigum í nágrenninu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
67.900.000 kr.935 þ./m²
+21,9% á 3 árum
24. maí 2023Fyrsta sala
55.700.000 kr.767 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Grettisgata 74

101 Reykjavík
67.900.000 kr.935 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1931TegundFjölbýlishúsStærð72,6 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20082694Fasteignamat62.800.000 kr.Brunabótamat38.150.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 16 myndir

Upp ↑