fasteignasölur.is
Arnarhraun 15
1 af 45

Um eignina

Glæsileg efri sérhæð með útleigueiningu á jarðhæð.

Kristján Þórir Hauksson Og Lind fasteignasala kynna: Bjarta fjögurra herbergja efri sérhæð í góðu tvíbýli sem hefur verið talsvert endurnýjuð síðustu ár. Eigninni fylgir 2ja herbergja aukaíbúð sem einnig er mikið endurnýjuð og er að hluta til niðurgrafin. Um að ræða 111,3 fermetra efri sérhæð sem skiptist í forstofu, eldhús, rúmgóða stofu/borðstofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og þvottahús. Úr stofunni er gengið út á svalir sem snúa til suðurs. Aukaíbúðin er 56,4 fermetra sem skiptist í anddyri, eldhús, stofu, baðherbergi og svefnherbergi.

Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða og bjarta forstofu með fataskáp og 60/60 flísum á gólfi.
Eldhús: Rúmgott og fallegt, granítborðplata, hvít háglans innrétting, spanhellur með háf sem blæs út og ofn í vinnuhæð. Mikið og gott skápapláss. Tangi með pláss fyrir tvo. Parket á gólfi.  Eldhús er í alrými opið við stofu og borðstofu.
Alrými/Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum á tvo vegu. Innfelld halogen lýsing og útgengi á suðursvalir. Veggskápar undir sjónvarpi og glerskápar. Parket á gólfi.
Rúmgott miðrými tengir saman íbúðina með óslitnu ljósu parketi og innfelldri halogen lýsingu.
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðum fataskáp og parket á gólfi. 
Svefnherbergi II: Rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Smekklegt með ljósum flísum á gólfi og í kringum sturtu. Stór sturta með innbyggðum blöndunartækjum, upphengt salerni og hvít háglans innrétting með granítborðplötu. Stór speglaskápur fyrir ofan vask. 
Þvottahús: Rúmgott með hvítum innréttingum og skápum sem hækkar vinnuhæð þvottavéla/þurrkara. Þrifagrind í skáp og óhreinataus skúffur. Flísar á gólfi.
Svalir: Snyrtilegar svalir sem snúa til suðurs.  Aðgengi út frá stofu.
Lóðin: Snyrtileg og vel hirt lóð með sólpalli og bakgarði sem er sameiginlegur með húsinu.
Sameign/Geymsla: Ca. 6 fm geymsla á jarðhæð sem er sameiginleg með miðhæð.

Nánari lýsing - aukaíbúð jarðhæð - útleigueining - Sérinngangur bakvið hús.
Forstofa: Gengið er inn um sérinngang í rúmgóða forstofu með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús: Hvít innrétting og dökkar borðplötur. Parket á gólfi.
Stofa: Samliggjandi með eldhúsi í opnu rými. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Með sturtu, upphengdu salerni, rakastýrðri viftu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Svefnherbergi: Stórt og rúmgott með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Ekki er full lofthæð í íbúðinni.

Geymsluskúr á lóð fylgir þessari íbúð

Stutt í alla helstu þjónustu, verslun, skóla og leiksskóla.

Endurbætur á íbúðinni:
Eftirfarandi endurbætur á húsinu hafa verið gerðar síðustu ár - raflagnir, ofnar, ofnalagnir, gólfefni og lýsing ásamt því að hún var máluð að innan 2019.

Viðhald á ytra byrði hússins og lóð:
2023 Ytra byrði sprunguviðgertog málað.
2023 lóð snyrt og timburverk málað.
2020. Útitröppur og aðkoma endursteypt.
2012.  Að sögn seljanda var þak endurnýjað. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Kristján Þórir Hauksson lögg. fasteignasali í síma 696-1122 eða á netfanginu kristjan@fastlind.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 










 
 

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
119.900.000 kr.715 þ./m²
+15,3% á 3 árum
27. febrúar 2024Þinglýstur kaupsamningur
104.000.000 kr.620 þ./m²
+67,7% á 7 árum
11. ágúst 2017Þinglýstur kaupsamningur
62.000.000 kr.370 þ./m²
+25,3% á 2 árum
23. september 2015Þinglýstur kaupsamningur
49.500.000 kr.295 þ./m²
+65,0% á 8 árum
30. ágúst 2007Fyrsta sala
30.000.000 kr.196 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Arnarhraun 15

220 Hafnarfjörður
119.900.000 kr.715 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1962TegundFjölbýlishúsStærð167,7 m²Herbergi6InngangurSérinngangurFasteignanúmerF207336317Fasteignamat106.450.000 kr.Brunabótamat97.900.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 45 myndir

Upp ↑