fasteignasölur.is
Brekkulækur 1
1 af 64

Um eignina

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Brekkulæk 1, íbúð 201, 105 Reykjavík:

Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 3ja til 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi í Lauganeshverfinu. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá er 106,4 fm. þ.a. er 11,5 fm. geymsla í kjallara.  Eignin er staðsett á frábærum stað miðsvæðis rétt hjá Laugardalnum og stutt er í skóla, leikskóla, sund, líkamsrækt og helstu þjónustu. 

Íbúðin var teiknuð og byggð sem 4ra herbergja en skipulag eignarinnar er talsvert breytt frá upphaflegu skipulagi og á einhverjum tímapunkti hefur verið bætt við stofurýmið á kostnað eins svefnherbergis.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Eignin skiptist í gang / hol, nýlegt eldhús með borðkrók, stofu / borðstofu með útgengi út á stórar norðaustur svalir, tvö svefnherbergi, baðherbergi, 11,5 fm. geymslu í kjallara og sameiginlegt þvottahús með íbúðinni á efstu hæðinni. Bílastæði fyrir húsið eru á lóðinni.

Nánari lýsing eignar: 
Gangur / hol: Komið er inn gang / hol sem tengir saman rými íbúðarinnar, parket á gólfi. Fram á stigagangi er fatahengi. 
Stofa / borðstofa: Tvær samliggjandi stofur. Önnur er rúmgóð og nýtt sem borðstofa í dag og er með útgengi á stórar norðaustur svalir með útsýni m.a. yfir Esjuna.
Eldhús: Glæsilegt eldhús með hvítri innréttingu, eldavél, ísskápur sem fylgir með, innbyggð uppþvottavél, borðkrókur með eldhúsbekk, flísadúkur á vegg hægra megin, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með innbyggðum fataskápum og fataskáp, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, parket á gólfi. 
Baðherbergi: Glæsilegt baðherbergi er með hvítri innréttingu, speglaskápur og viðar veggskáp, sturtubaðker, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Geymsla: Í kjallara er 11,5 fm sér geymsla.
Sameign:  Í sameign í kjallara er sameiginlegt þvottahús með einni annarri íbúð. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á fyrstu hæð. 

Húsið: Í húsinu eru alls níu íbúðir. Í stigaganginum eru tvær íbúðir og er gengið inn um hann að sunnanverðu. 
Lóðin: Sameiginleg 1453 fm lóð. Innkeyrsla er steypt svo og framan við anddyri. Bílaplan er á lóð.
Staðsetning: Smellið hér. 


Búið er að endurnýja þó nokkuð að utan og íbúðina að innan m.a.:
* 2024 voru settar snjógildrur á þakið.
* 2022-2023 Skipt hefur verið um glugga á austurhlið hússins (framhlið).
* 2019-2020 Var húsið múrviðgert, málað og skipt um klæðningu á jarðhæð. Gluggar, handrið og grindverk lagað og málað. Einnig var nýtt steinhandrið sett að framan á 2. hæð hússins.
* 2011 Skolplagnir myndaðar og metnar í góðu lagi.
* 2009 Þakjárn endurnýjað.
* Skipt hefur verið um ofna og lagnir í íbúðinni.
* Rafmagnið var allt tekið í gegn í íbúðinni 2022. Dregið nýtt í töflu og nýir rofar og tenglar.

Falleg fjölskyldueign á góðum stað rétt við Laugardalinn - Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is. 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Helgafell Fasteignasala
87.500.000 kr.822 þ./m²
+8,0% á 2 árum
25. júní 2024Þinglýstur kaupsamningur
81.000.000 kr.761 þ./m²
+27,2% á 2 árum
17. febrúar 2022Þinglýstur kaupsamningur
63.700.000 kr.599 þ./m²
+65,5% á 6 árum
29. febrúar 2016Þinglýstur kaupsamningur
38.500.000 kr.362 þ./m²
+71,1% á 9 árum
26. júlí 2007Fyrsta sala
22.500.000 kr.211 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Brekkulækur 1

105 Reykjavík
87.500.000 kr.822 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1960TegundFjölbýlishúsStærð106,4 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20162536Fasteignamat80.400.000 kr.Brunabótamat54.600.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 64 myndir

Upp ↑