fasteignasölur.is
Silfurgata 39
1 af 88

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt og vel skipulagt einbýli á frábærum stað við Silfurgötu 39 í Stykkishólmi.  Staðsetning hússins er eins og áður sagði frábær, steinsnar frá miðbænum en samt mjög prívat og falin frá götu með einstaklega fallegum og grónum garði..  Húsið sem byggt er árið 1966 er fallegt og vandað 102,1fm steinsteypt einbýlishús ásamt  32,0 fm.bílskúr samtals 134,1fm.  
Bókaðu skoðun hjá Bjössa því hér er sjón sannarlega sögu ríkari.


Eignin skiptist þannig:

Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápuri.
Stofa og borðstofa: Parket á gólfum. Rúmgóðar og bjartar stofur með stórum gluggum.
Svefnherbergishol: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað á vandaðan máta. Upphengt salerni og walk in sturta með gler skilrúmi. Flísar á gólfi.
Herbergi I: Bjart og fallegt hjónaherbergi. Parket á gólfi. 
Herbergi II: Rúmgott og bjart. Parket á gólfi.
Eldhús: Nýleg hvít innrétting með ágætis skápaplássi og nýlegum tækjum. Góður eldhúskrókur. Parket á gólfi.
Þvottahús og búr/geymsla: Vaskur og tengi fyrir þvottamél. Steypt gólf. Útgengt.
Bílskúr: Rúmgóður með geymsluhillum Sjálfvirkur hurðaopnari. Afstúkuð geymsla inn af skúr. 

Annað:
Húsið virðist hafa  notið góðs viðhalds í gegnum tíðina og ber þess glögg merki.
Gróðurhús er í garðinum.
Skjógóður og sólríkur sólpallur er út frá bílskúrnum.

Hér er á ferð vel skipulagt einbýli og frábært tækifæri til þess að eignast vel staðsetta og vandaða eign í Hólminum fagra.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is 

 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
62.900.000 kr.469 þ./m²
+242,8% á 10 árum
21. maí 2016Fyrsta sala
18.350.000 kr.137 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Silfurgata 39

340 Stykkishólmur
62.900.000 kr.469 þ./m²
Einbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1966TegundEinbýlishúsStærð134,1 m²Herbergi4InngangurTveir inngangarBílskúrFasteignanúmerF21161161Fasteignamat51.600.000 kr.Brunabótamat66.000.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 88 myndir

Upp ↑