Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt sumarhús á góðum stað við Hrísabrekku 27 í landi Eyrar í Svínadal, Hvalfjarðarsveit. Eignin er skráð 53,4 m2 að stærð en auk þess er kaldur geymsluskúr á timburverönd sem er ekki inn í fermetratölu. Húsið skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Kynding er með varmadælu og rafmagnsofnum. Góð timburverönd er við húsið með heitum rafmagnspotti. Innbú fylgir utan persónulegra muna. Húsið stendur á 4.300 m2 leigulóð, ofarlega í sumarhúsabyggðinni Hrísabrekku, með glæsilegu útsýni. Svæðið er lokað með símahliði. Aðeins um 45 mínútna akstur frá höfuðborgarsvæðinu.
Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi og fataskápur.
Stofa: Parket á gólfi og útgengt á timburverönd.
Eldhús: Parketi á gólfi, innrétting, vaskur, ofn, helluborð og ísskápur. Opið við stofu.
Svefnherbergi 1: Parket á gólfi, rúm og kojurúm þar fyrir ofan.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi og rúm.
Svefnherbergi 3: Parket á gólfi og rúm.
Baðherbergi: Flísadúkur á gólfi, innrétting með handlaug, sturtuklefi og salerni. Forhitari á sturtu. Tengi fyrir þvottavél.
Geymsluskúr er á verönd. Rúmgott bílastæði er framan við hús.
Helstu rekstrargjöld:
Sumarbústaðafélag: 55 þkr. árið - viðhald og rekstur á stofnlögnum og vegum er m.a. inn í því. Lóðarleiga: 229 þkr. árið. Fasteignagjöld 2026: 155 þkr. árið. Brunatrygging: 37 þkr. árið. Rafmagn: 6 þkr. ca. mánuður.
Samkvæmt upplýsingum frá sumarbústaðarfélaginu Eyrarskógur/Hrísabrekka eru engar stórar framkvæmdir fyrirhugaðar á vegum félagsins, aðeins viðhald og rekstur. Á vefsíðu félagsins má finna helstu upplýsingar ásamt fundargerðum o.fl. https://www.eyrarskogur.is/
Verð kr. 31.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Hrísabrekka 27
Staðsetning
Allar 31 myndir
Upp ↑





























