fasteignasölur.is
Tröllakór 16
1 af 25

Um eignina

PRODOMO fasteignasala  kynnir í einkasölu rúmgóða og fallega 3ja herbergja íbúð merkt 208 með sér inngang í fallegu lyftufjölbýli að Tröllakór 16, í Kópavogi. Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 97,9 m2, þarf af er 7,1 m2 sér geymsla í kjallara. Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu og eldhús í opnu rými, rúmgóðar 12 m2  svalir, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar ásamt geymslu í kjallara. 

Um er að ræða snyrtilega og vel staðsetta eign í Kórahverfi einu vinsælasta hverfi Kópavogs. Stutt er í helstu þjónusta og verslanir. Leik- og grunnskólar eru í göngufæri ásamt íþróttaaðstöðu í Kórnum og sundlaugin í Salahverfi eru í næsta nágrenni. Góðar almenningssamgöngur eru í gegnum hverfið. Fallegar gönguleiðir um hverfið og stutt í náttúruna til að njóta útiverunnar. Góð eign í fallegu fjölbýlishúsi.



Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa/borðstofa Í björtu alrými með gólfsíðum gluggum og er útgengt á rúmgóðar svalir, parket á gólfi
Eldhús hefur parket á gólfi, innréttingu í L með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél, helluborði, ofn og örbylgjuofn
Svefnherbergi með parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum nýlegum fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, innréttingu við vask, handklæðaofn og baðkar með sturtu.
Þvottahús er innan íbúðar og hefur flísar á gólfi, vask í borði og hillur.
Í sameign er sérgeymsla íbúðar 7,1 m2 ásamt sameiginlegum rýmum m.a. hjóla- og vagnageymsla auk sameiginlegri dekkja- og hjólbarðageymslu.
Sameiginleg hleðslustöð er við húsið.  

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
hakon@prodomo.is

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
lilja@prodomo.is 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · PRODOMO ehf
75.300.000 kr.769 þ./m²
+75,1% á 7 árum
16. desember 2019Þinglýstur kaupsamningur
43.000.000 kr.439 þ./m²
+92,8% á 12 árum
23. ágúst 2007Fyrsta sala
22.300.000 kr.228 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Tröllakór 16

203 Kópavogur
75.300.000 kr.769 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2006TegundFjölbýlishúsStærð97,9 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF228926740Fasteignamat70.500.000 kr.Brunabótamat51.750.000 kr.
Skráð hjá
PRODOMO ehf
HeimilisfangHafnargötu 15, 230 ReykjanesbæSími420-4030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑