fasteignasölur.is
Sjávarborg Kirkjusandur 13
1 af 18

Um eignina

Miklaborg kynnir til leigu: Til leigu einstakt skrifstofuhúsnæði í Sjávarborg Kirkjusandi. Um er að ræða alla 3ju hæðina sem er 1.550 fm en möguleiki er að skipta henni upp. Einstakt útsýni er af öllum hæðum hússins. · Staðsetning er frábær, rétt við Borgartún og stutt frá miðbænum. · Auglýsingagildi og sýnileiki með besta móti, nýtt kennileiti í Reykjavík. · Glæsilegt anddyri bæði í kjallara og 1 hæð. · Hönnun og útlit á heimsmælikvarða · Mjög stór samtengdur bílakjallari undir öllu hverfinu með hátt í 1.000 bílastæði · Heilsugæsla fyrir 105-108 hverfin á 2 hæðinni og stórt apótek á jarðhæð

Húsnæðið miðast við tilbúið til innréttinga en hægt er að innrétta fyrir leigjanda skv.samkomulagi og getur verið tilbúið til notkunar innan 4-6 mánaða frá undirritun leigusamnings.Hverfið tengist Borgartúni frá Sundlaugavegi, aðrar tengingar eru frá Sæbraut og Laugarnesi. Þá eru góðir göngu og hjólastígar við hverfið í allar áttir ásamt því að ný borgarlína sé áformuð með stoppistöð við það.

Ýmsir möguleikar eru á skiptingu rýmisins í opin vinnurými, lokaðar skrifstofur/ fundarherbergi. Inngangur í kjallara hjá bílastæðum er bjartur og stór og virkar eins og aðalinngangur. Í kjallara hússins eru hjólreiðageymslur og búningsaðstaða með sturtum. Úr bílageymslu í kjallara ganga svo tvær lyftur. Mikið er af bílastæðum í kjallara sem er
samfelldur undir öllu hverfinu.


Allar nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Sjávarborg Kirkjusandur 13

105 Reykjavík
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2022TegundAtvinnuhúsnæðiStærð1550 m²Herbergi25FasteignanúmerF2369804Fasteignamat990.000.000 kr.
Skráð hjá
Svan Gunnar GuðlaugssonLöggiltur fasteignasali697-9300 · svan@miklaborg.is
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑