fasteignasölur.is
Rósarimi 6
1 af 72

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir vel staðsetta 4ra herbergja enda íbúð á 2. hæð í Rimahverfi. Íbúðin er með sérinngangi af svölum. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Sameiginlegar hleðslustöðvar fyrir tvo bíla á bílastæði.
Eignin getur verið laus við kaupsamning


Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 96,8 fm. 
Nánari upplýsingar hjá Kristínu í síma 837-1177 eða á kristin@trausti.is  


Nánar um eignina:
Anddyri með fatahengi og skóskáp. Flísar á gólfi.
Eldhús með upprunalegri innréttingu og góðum borðkrók. Nýlegt helluboð, bakaraofn og vifta. Tengi fyrir uppþvottavél. Dúkur á gólfi. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Rúmgóð og björt stofa með dúk á gólfi. Útgengt á suðursvalir úr stofu.
Hjónaherbergi með góðum skáp. Dúkur á gólfi.
Barnaherbergi I með góðum skáp. Dúkur á gólfi.
Barnaherbergi II með góðum skáp. Dúkur á gólfi.
Baðherbergi með glugga. Baðkar, handlaug og salerni. Tengi fyrir þvottavél. Flísar við baðkar. Dúkur á gólfi.
Vagna- og hjólageymsla í sameign.
Sérgeymsla með glugga í sameign.

Viðhald sem farið hefur verið í undanfarin ár:
Gluggar eignar yfirfarnir og skipt um þá sem þörf var á
Nýleg Svalahurð
Virkt húsfélag er í húsinu og hefur það fengið gott viðhald í gegnum tíðinna.

Um er að ræða bjarta og vel skipulagða íbúð í þessu rótgróna og fallega hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra nauðsynlega þjónustu. 

Um dánarbú er að ræða og því þekkir seljandi ekki meira til eignarinnar en kemur fram í lýsingu og opinberum gögnum. Því hvetur seljandi væntanlegan kaupanda að gæta sérstakrar árverkni við skoðun á eigninni.

Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða á netfanginu kristin@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Rósarimi 6

112 Reykjavík
73.900.000 kr.763 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1995TegundFjölbýlishúsStærð96,8 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22218181Fasteignamat68.950.000 kr.Brunabótamat50.950.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 72 myndir

Upp ↑