fasteignasölur.is
Mýrargata 37
1 af 29

Um eignina

Helgafell fasteignasala og Jón G. Sandholt kynnir með stolti glæsilega og sérhannaða þakíbúð á efstu hæð í Mýrargötu 37, 101 Reykjavík. Eignin telur 109,7m² og er þakíbúð á 6.hæð með tvennum þaksvölum og tveimur bílastæðum hlið við hlið í bílakjallara. Tvennar geymslur fylgja eigninni, 9m² & 9,5m². Vandaðar hnotuinnréttingar frá Axis, gegnheilt fiskibeina parket frá Ebson, Quartz borðplötur, marmari frá Fígaró á milli efri og neðri skápa í eldhúsi, og hönnunaráherslur frá Berglindi Berndsen arkitekt.

Nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.is. 

Milliloft/stigi var smíðaður eftir afhendingu og er þar af leiðandi ekki inni í birtum fermetrum. Eignin er vel skipulögð 109,7 m² þakíbúð með mikilli lofthæð, vönduðum sérsmíðuðum innréttingum og tvennum þaksvölum. Íbúðin hefur verið sérstaklega útfærð og uppfærð frá upprunalegri afhendingu með vönduðum efnum.

Eignin telur:

Anddyri
með parket á gólfi og fataskáp.
Vel skipulagt eldhús með eyju, Quartz stein á borðum, marmari á milli efri og neðri skápa frá Fígaró. Aðgengi út á 17 m² þaksvalir til suðvesturs.
Hjónaherbergi með parket á gólfi, þakgluggum með rafstýrðum gardínum, rúmgóðum fataskápum og sér baðherbergi.
Baðherbergi er flísalagt með vandaðri innréttingu, Quartz steinn á borði.
Stofa/borðstofa með parket á gólfi, aðgengi út á svalir til austurs.
Tvö bílastæði hlið við hlið í bílakjallara
Milliloft er með parket á gólfi, (u.þ.b 5m²) ekki í birtum fermetrum. Sérsmíðaður stigi, þakgluggi.
Sér þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Þaksvalir til suðvesturs telja 17 m², með 3,5 m² útigeymslu og rafmagnspotti frá heitirpottar.is.
Þaksvalir til austurs telja 9,3 m².

Nánari lýsing:
  • Gólfhiti með Danfoss stýribúnaði.
  • Sérsmíðaðar hnotuinnréttingar frá Axis
  • Gegnheilt fiskibeina viðarparket frá Ebson
  • Quartz borðplötur frá Granítsmiðjunni
  • Marmari milli eldhússkápa frá Fígaró
  • Blöndunartæki frá Ísleifi Jónssyni
  • Hönnunaráherslur frá Berglindi Berndsen arkitekt

Nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.is. 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Helgafell Fasteignasala
174.900.000 kr.1594 þ./m²
+46,7% á 3 árum
12. janúar 2024Fyrsta sala
119.200.000 kr.796 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Mýrargata 37

101 Reykjavík
174.900.000 kr.1.594 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 2 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð109,7 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF25245741Fasteignamat112.300.000 kr.Brunabótamat97.590.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑