fasteignasölur.is
Klapparstígur 7
1 af 19

Um eignina

STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU FYLGIR
Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Falleg og björt þriggja herbergja íbúð með suðursvölum í góðu lyftuhúsi við Klapparstíg 7 í Reykjavík.
Íbúðin er skráð 71,5fm og geymslan 5,7fm, samtals 77,2fm. Stæði í bílageymslu. Húsvörður og garðyrkjumaður. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu. 

Miklar framkvæmdir eru í gangi á blokkinni þar sem á að skipta út gluggum þar sem þarf, settar nýjar þaktúður og rennur hreinasaðar.  Framkvæmdakostnaður er áætlaður 5.500.124 kr á þessa eign og mun seljandi taka þann kostnað.

Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D  

// Stæði í bílahúsi, búið að setja rafhleðslu.
// Suðursvalir.
// Vel staðsett eign.
// Nýlegt helluborð og ofn í eldhúsi.


Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi og með fataskáp.
Eldhús: Flísar á gólfi, falleg innrétting með miklu skápaplássi, útgengt út á góðar suður svalir.  
Stofa: Er opin við eldhús, björt og rúmgóð, horngluggi, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Er rúmgott með fataskápum sem ná upp í loft og gólfsíðum glugga, parket á gólfi. 
Barnaherbergi: Er parketlagt og með fataskáp. 
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, innrétting yfir og undir vaski, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn. 
Þvottahús: Er á hæðinni fyrir fjórar íbúðir, hver með sína vél.
Geymsla: Er í kjallara er mjög rúmgóð, hillur, aukin lofthæð.
Bílastæði í góðum bílakjallara. Búið að setja hleðslustöð við stæði.
Hjóla/vagnageymsla er í sameign. Sameign hússins, garður og umhverfi er mjög snyrtilegt.
Lóðin er sameiginleg eignarlóð húsanna Klapparstígur 1-7 og Skúlagötu 10, hún er einkar glæsileg og hefur fengið fjölda viðurkenninga.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is.
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
81.900.000 kr.1061 þ./m²
+14,5% á 4 árum
10. maí 2022Fyrsta sala
71.500.000 kr.926 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Klapparstígur 7

101 Reykjavík
81.900.000 kr.1.061 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1999TegundFjölbýlishúsStærð77,2 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF221970724Fasteignamat77.150.000 kr.Brunabótamat52.120.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑