fasteignasölur.is
Frostafold 23
1 af 29

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

Vorum að fá í sölu virkilega skemmtilega 113,1 fm 3ja herbergja útsýnis íbúð á tveimur hæðum ásamt bílskúr við Frostafold 23 í Reykjavík.
 Eignin skiptist í eldhús, stofu og þvottahús á neðri hæð og á efri hæð er sjónvarpshol (möguleiki að breyta í herbergi), tvö svefnherbergi, baðherbergi og hol. Rúmgóður bílskúr á 1.hæð. Sérgeymsla í sameign.  Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan.
 Eignin er skráð skv. HMS 113,1 m2, neðri hæð: 33,8 m2, risloft: 44,1 m2 og bílskúr 25,3 m2

Eignin er laus strax! Eigandi skoðar skipti á ódýrari íbúð. 


Helstu kostir:
  • Sérbílskúr (25 fm) og geymsla í sameign (10 fm)
  • Björt íbúð með útgengi á stórar suðursvalir (c.a. 20 fm)
  • Mikið endurnýjuð eign með frábæru útsýni
  • Góð staðsetning nálægt náttúru og helstu þjónustu
 Neðri hæð:
 Anddyri: Komið er inn í anddyri með fataskáp sem er opið inn að stofu.
 Stofa: Björt og góð stofa með útgengt á stórar svalir sem snúa til suðurs með miklu útsýni.
 Eldhús: Eldhúsið hefur nýlega verið endurnýjað með fallegri innréttingu frá Innlifun og góðum eldunartækjum. Eldhúsið er opið inn að stofu.
 Þvottahús: Inn af anddyri er þvottahús.
 Hringstigi liggur upp á efri hæð.
 Efri hæð:
 Komið er upp í bjart opið rými með mikilli lofthæð og að hluta undir risi.
 Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpsrými er í opnu rými frá holi. Möguleiki er að útbúa þriðja svefnherbergið úr sjónvarpsholinu.
 Hjónaherbergi: Að hluta undir risi. góður gluggi og innskot fyrir fataskáp. Parket á gólfi.
 Barnaherbergi:  Að hluta undir risi. Parket á gólfi. 
 Baðherbergi:  Fallegt nýlega endurnýjað baðherbergi með hvítum flísum, fallegri innréttingu, walk in sturtu með glerskilrúmi.  Hiti í gólfi og góð lofthæð er inni á baðherbergi.
 Sameign: Sérgeymsla(9,9 fm) er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 
 Bílskúr: Mjög rúmgóður 25,3 fm bílskúr. Skúrinn er staðsettur næst inngangi og er með gott bílastæði beint fyrir framan hann.

 Endurbætur og viðhald:
  • Íbúðin var mikið endurnýjuð 2022
  • Eldhús endurnýjað með innréttingu frá Innlifun 2022 
  • Baðherbergi endurnýjað alveg og settur hiti í baðherbergisgólf árið 2022
  • Allt nýtt í gólfefnum m.a. Pergo harðparket frá Egill Árnason 2022
  • Nýtt rafmagn í eldhúsi, baðherbergi og búið að fjölga tenglum í íbúðinni
  • Yfirborð á svölum var tekið í gegn 2021
  • Skipt um glugga og svalahurð á neðri hæð 2024
Um er að ræða virkilega fallega og mikið endurnýjaða eign sem vert er að skoða. Leikskólinn Sunnufold er handan við húsið og göngufæri er í Foldaskóla. Einnig er göngufæri í verslanir og þjónustu á Foldatorgi og eru undirgöng undir Fjallkonuveg. Stutt í Grafarvogslaug, kirkju o.fl.


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Garður
77.900.000 kr.689 þ./m²
+86,8% á 5 árum
27. apríl 2021Þinglýstur kaupsamningur
41.700.000 kr.369 þ./m²
+19,1% á 2 árum
12. nóvember 2018Þinglýstur kaupsamningur
35.000.000 kr.309 þ./m²
+47,7% á 6 árum
30. ágúst 2012Þinglýstur kaupsamningur
23.700.000 kr.210 þ./m²
+18,5% á 6 árum
29. júní 2006Fyrsta sala
20.000.000 kr.177 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Frostafold 23

112 Reykjavík
77.900.000 kr.689 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1988TegundFjölbýlishúsStærð113,1 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF20418008Fasteignamat74.450.000 kr.Brunabótamat60.200.000 kr.
Skráð hjá
Garður
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑