Um eignina
Einstaklega fallegt og afar vel skipulagt 125,6 fm. parhús á þessum eftirsótta stað. Eignin er á tveimur hæðum og kjallari. Hellulögð verönd með heitumpotti og gróðurhúsi. Skúr sem er notaður sem trésmíðaverkstæði í dag ca. 15 fm á verönd, skúrinn er einangraður og upphitaður. Frábær staðsetning innarlega i botnlangagötu. Hellulagt bílastæði, hleðslustöð við bílastæði. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veita:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 / th@landmark.is
Sveinn Eyland lögg. fast. s. 6 900 820 / sveinn@landmark.is
Nánari lýsing eignar:
Aðalhæð
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús / borðstofa: Virkilega falleg ljós innrétting með límtrésborðplötu. Innbygg uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Spanhelluborð. Öll tæki frá Siemens. Flísar á milli skápa og límtré. Gott pláss fyrir borðstofuborð. Harðparket á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt, tvöföld hurð út á verönd. Arinn með Drápuhlíðargrjóti. Harðparket á gólfi.
Snyrting: Rúmgóð, flísar á gólfi og veggjum. Falleg innrétting í kringum handlaug. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Stigi á milli hæða með ullarteppi á þrepum.
Önnur hæð:
Sjónvarphol með parket á gólfi.
2 svefnherbergi með parker á gólfi, fataskápur í öðru herberginu.
Kjallari:
Miðrými með parket á gólfi.
Herbergi: Rúmgott með parket á gólfi.
Þvottahús: Flísar gólfi, góð aðstaða fyrir þvottavél. Innrétting með vask. Flísalögð sturta.
Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat
Háagerði 14
Staðsetning
Allar 84 myndir
Upp ↑


















































































