fasteignasölur.is
Hagamelur 8
Nýtt
1 af 33

Um eignina

Miklaborg kynnir: LAUS VIÐ KAUPSAMNING! BÓKIÐ SKOÐUN!

Vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð við Hagamel 8 í Reykjavík. Íbúðin er skráð 105,7 fm. Eignin skipist í þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu / borðstofu og baðherbergi. Sér geymsla er innan íbúðar og sameignlegt þvottahús.

Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is

Hagamelur 8 er steinsteypt íbúðarhús, kjallari, tvær hæðir og ris. Húsið er byggt 1946. Tveir mathlutar eru á lóð. Mathluti 01 er íbúðarhús og matshluti 02 eru tvær bílageymslur. Þak hússins er valmaþak með kvistum, byggt úr timbri og klætt.

Nánari lýsing

Forstofa: Gengið inn í forstofu frá sameign. Parket á gólfi

Svefnherbergi: Samtals eru þrjú rúmgóð herbergi. Parket á gólfi. Léttir fataskápar í hjónaherbergi og öðru barnaherbergi.

Baðherbergi: Sturta, salerni og skolvaskur. Flísar á gólfi og hluta af veggjum.

Eldhús: Hvít viðarinnrétting. með gaseldavél, bakarofni og viftu. Gert ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og frístandandi ískáp. Parket á gólfi. Við eldhús er lítil geymsla sem hægt er að nýta sem búr eða vinnuaðstöðu.

Stofa / Borðstofa: Stór og rúmgóð stofa og borðstofa með glugga á tvo vegu. Parket á gólfi.

Geymsla: Innaf forstofu er sérgeymsla íbúðar. Málað gólf.

Sameign: Sameign er snyrtileg. Þar eru sérgeymslur annarra íbúða í húsinu og sameiginlegt þvottahús. Nýlegt teppi á gólfi.

Endurbætur síðustu ár: 

2012 : Húsið var steinað.

2024:  Rafmagnstafla og rafmagnslagnir endurnýjaðar.
2025 : Frárennslislagnir voru endurnýjaðar og bætt var við drén lögnum í kringum húsið. Nýjar upphitaðar stéttir.

2026: Ofnakerfi og pípulagnir endurnýjaðar.

Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is


Hagamelur 8

107 Reykjavík · Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð105,7 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
77.900.000 kr.737 þ./m²
Byggingarár1946InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2027481Fasteignamat82.700.000 kr.Brunabótamat47.500.000 kr.
Skráð hjá
Friðjón Örn MagnússonLöggiltur fasteignasali, B.A í stjórnmálafræði692-2704 · fridjon@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑