fasteignasölur.is
Hallkelshólar lóð 87
1 af 17

Um eignina

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Snoturt 24,6fm sumarhús á 8400fm leigulóð, - stór og skjólsæll pallur með plastþaki yfir að hluta og geymsluskúr.

Í forstofu eru snagar fyrir útiföt og salerni þar við með nettum hitakút og einfaldri sturtuaðstöðu. 
Inni er stofa með eldhúsaðstöðu og svefnherbergi innaf með rúmi og tveimur kojum.
Öllu haganlega fyrir komið svo plássið nýtist sem best.  Innbú fylgir við sölu að einhverju leiti eftir nánara samkomulagi.
Dúkur á gólfum og veggir og loft málað. 
Húsið er hitað með rafmagnsofnum og frárennsli tengt við rotþró. Undir því eru stálbitar og það hvílir á steyptum klumpum.
Það er klætt að utan með bárujárni sem og þakið, gluggar og hurð úr tré.  Stór, nýmálaður pallur framan við með skjólveggjum og plastþaki yfir að hluta og geymsluskúr í einu horninu. 
Lóðin er 8400fm leigulóð og nýtingarhlutfall hennar er samkvæmt gildandi deiliskipulagi 0,03 þannig að byggingarheimildir eru vel rúmar.  Á henni er djúp laut með skemmtilegum nýtingarmöguleikum fyrir hugmyndaríkt fólk.
Svæðið er læst með símahliði og stutt í margs konar afþreyingu eins og golfvelli og sundlaugar.
Vinalegur staður með alls konar möguleika.

--VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN--


Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    loftur@husfasteign.is  

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · HÚS fasteignasala
18.900.000 kr.768 þ./m²
+105,4% á 7 árum
17. apríl 2019Fyrsta sala
9.200.000 kr.374 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hallkelshólar lóð 87

805 Selfoss (dreifbýli)
18.900.000 kr.768 þ./m²
Sumarhús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2015TegundSumarhúsStærð24,6 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF234418913Fasteignamat20.150.000 kr.Brunabótamat19.450.000 kr.
Skráð hjá
HÚS fasteignasala
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑