fasteignasölur.is
Mýrarland 14
1 af 45

Um eignina

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Mýrarland 14, nýlegt og snyrtilegt 176,7fm, einbýlishús með bílskúr innst í botnlangagötu á Selfossi.
Pallur og pottur.

Komið er inn í flísalagða forstofu með hengi og stórum skápum fyrir yfirhafnir.
Inni á hægri hönd er opið og sameiginlegt rými stofu og eldhúss, en herbergja-  og þvottahúsgangur fram í bílskúr til vinstri.  
Í stofunni eru gluggar að gólfi á tvo vegu og gengt út á stóran pall.   Eldhúsið er búið IKEA innréttingu og vönduðum tækjum frá SIEMENS, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél sem fylgja við sölu. Vandað parket á gólfum þessara rýma sem og á herbergjum og gangi.
Svefnherbergin eru fjögur og fataskápar í þeim öllum, -  hjónaherbergið stærst og með mesta skápaplássið. 
Á baðherberginu er baðkar og flísalögð sturta með glerþili, skápur, upphengt klósett og handlaug á stóru borði með skúffum undir.  Flísar á gólfi og upp á veggi.
Þvottahúsgangur með mikilli innréttingu og skolvaski, og gengt þaðan fram í rúmgóðan 44,9fm bílskúr með epoxy á gólfi, geymslu innaf og afstúkuðu klósetti. Gönguhurð út og rafdrifnar innkeyrsludyr með fjarstýringu.
Að utan er húsið klætt með lituðu liggjandi bárujárni, gluggar og hurðir eru ál/tré og bárujárn á þaki. 
Stór pallur með heitum potti með SA hlið hússins og hleðslustöð fyrir rafbíla framan á bílskúrnum.
Mulningur í innkeyrslu.  Leikskólinn Goðheimar í þægilegu göngufæri, og Sunnulækjarskóli og íþróttamannvirki bæjarins innan seilingar eftir góðum göngustígum.
Praktískt og gott fjölskylduhús á rólegum stað. 

---VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN---


Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    loftur@husfasteign.is  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · HÚS fasteignasala
109.900.000 kr.622 þ./m²
+20,9% á 4 árum
2. september 2022Þinglýstur kaupsamningur
90.900.000 kr.514 þ./m²
+164,9% á 4 árum
19. nóvember 2018Fyrsta sala
34.320.000 kr.194 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Mýrarland 14

800 Selfoss
109.900.000 kr.622 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2019TegundEinbýlishúsStærð176,7 m²Herbergi5InngangurTveir inngangarBílskúrFasteignanúmerF236704615Fasteignamat108.000.000 kr.Brunabótamat94.550.000 kr.
Skráð hjá
HÚS fasteignasala
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 45 myndir

Upp ↑