fasteignasölur.is
Birkiholt 1
1 af 37

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir glæsilega, bjarta og vel skipulagða 3ja herb. endaíbúð á þriðju hæð með sérinngangi af svölum við Birkiholt 1 á Álftanesi með fallegu útsýni. Eignin er skráð skv. HMS alls 94,1m2. þar af er sérgeymsla 6,1 m2. Sér merkt bílastæði fylgir eigninni.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, gang, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, sérgeymslu ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu í sameign.

2020 var eignin mikið endurnýjuð

* Eldhúsið endurnýjað með innréttingum frá HTH
* Baðinnrétting frá HTH endurnýjuð
* Innihurðar endurnýjaðar með hurðum frá Parka
* Parket endurnýjað


Nánari lýsing eignar 
Forstofa með góðu skápaplássi, flísar á gólfi, stór gluggi sem hleypir birtu inn í rýmið.
Gangur/hol bjart með parketi á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu með stórri eyju sem hægt er að sitja við, mikið skápapláss, innbyggð uppþvottavél, helluborð, góð vinnuaðstaða, parket á gólfi.
Stofan er mjög rúmgóð og björt með parket á gólfi, útgengt út á rúmgóðar svalir til suðurs , með einstaklega fallegu útsýni til fjalla og yfir höfuðborgina, fallegur horngluggi með útsýni yfir Bessastaði,  
Hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp með nýju innvolsi, parket á gólfi.  
Barnaherbergið er rúmgott með fataskáp, parket á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, góð innrétting með efri og neðri skápum, og flísalagt í hólf og gólf. 
Þvottahús með skolvaski, þvottasnúrur, hillur, flísar á gólfi. 
Geymsla innan sameignar á jarðhæð, skráð 6,1 m2.

Hleðslustaur á lóð þar sem að hægt er að hlaða tvo bíla í einu, og búið er að leggja fyrir öðrum.

Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg á jarðhæð. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaugina og á golfvöllinn.  Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
74.900.000 kr.796 þ./m²
+36,4% á 5 árum
3. nóvember 2021Þinglýstur kaupsamningur
54.900.000 kr.583 þ./m²
+31,0% á 2 árum
28. nóvember 2019Þinglýstur kaupsamningur
41.900.000 kr.445 þ./m²
+47,0% á 4 árum
6. október 2015Þinglýstur kaupsamningur
28.500.000 kr.303 þ./m²
+35,7% á 7 árum
29. ágúst 2008Fyrsta sala
21.000.000 kr.223 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Birkiholt 1

225 Garðabær
74.900.000 kr.796 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2003TegundFjölbýlishúsStærð94,1 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22643121Fasteignamat72.200.000 kr.Brunabótamat46.800.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑