fasteignasölur.is
Skildinganes 45
1 af 30

Um eignina

Miklaborg kynnir: Miklaborg kynnir: Fallegt og fjölskylduvænt 250 fm einbýlishús á 647 fm eignarlóð í eftirsóttu íbúðahverfi í nálægð við sjávarsíðuna í Skerjafirði. Sex svefnherbergi, þrjú baðherbergi, aukaíbúð með sérinngangi.

Húsið sem er rúmgott og vel skipulagt stendur við rólega götu, við einstakt útivistarsvæði við sjávarsíðuna, Nauthólsvík, Öskjuhlíð og hentar þannig fólki sem kýs að búa nálægt náttúru en vera á sama tíma stutt frá miðborginni.

Eignin er rúmgóð og býður aukaíbúðin upp á skemmtilega möguleika fyrir fjölskyldu en getur einnig hentað til útleigu.

Húsið er teiknað af arkitektastofunni ARKO 1973. Húsið er skráð 220 fermetrar með bílskúr. Til viðbótar er 30 fermetra innréttað en óskráð rými sem er hluti af aukaíbúðinni. Heildareignin er því 250 fermetrar. Lóðin er 647 fermetra eignarlóð. Húsið og lóðin hefur fengið töluverða endurnýjun og er viðhald gott.. Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur, lögg. fast. vidar@miklaborg.is s.6941401


Jarðhæð: Gengið er inn í anddyri á jarðhæð. Á vinstri hönd er gestasnyrting sem var endurnýjuð 2019. Úr anddyri er bæði gengið niður í íbúð í kjallara og inn í bjart og opið stofurými og eldhús á jarðhæð. Anddyri var endurnýjað 2021. Eldhús var endurnýjað 2019.

Svefnherbergishæð: Gengið er upp á svefnherbergishæð úr stofurými. Þar eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Hjónaherbergi er rúmgott, með svölum og tröppum niður í lokaðan hellulagðan garð. Baðherbergi var endurnýjað 2023.

Þriggja herbergja íbúð í kjallara: Íbúðin var öll endurnýjuð 2021. Sérinngangur. Eldhús, tvö svefnherbergi, stofa og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél.

Bílskúr: Góður bílskúr með heitu og köldu vatni. Gólf úr epoxífloti.

Lóð: Lóðin er að mestu hellulögð en grasflöt í bakgarði. Lokaður, skjólgóður hellulagður garður. Hiti er í stéttum við framanvert hús.

Endurbætur:

2021: Kjallari endurnýjaður með nýju baðherbergi og gólfefnum. Kaldavatnslagnir sandblásnar og akrílhúðaðar. Sísalteppi lögð á tröppur milli hæða. Felligardínur og myrkvunargardínur frá Skermi fyrir aðalhæð og efri hæð. Anddyri endurnýjað. Skipt um gler í öllum stofugluggum á aðalhæð og allar svalahurðir endurnýjaðar.

2022: Múrviðgerðir og málun á húsi. Útveggur baðherbergis og stofu í kjallara tjargaður, skipt um jarðveg og sett drenmöl. Skipt um jarðveg og nýjar grasþökur lagðar í bakgarði. Skipt um jarðveg og hellur lagðar í vestanverðum garði.

2023: Baðherbergi á efri hæð endurnýjað og lagður gólfhiti.

Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur, lögg. fast. vidar@miklaborg.is s.6941401


Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
225.000.000 kr.900 þ./m²
+57,3% á 5 árum
27. apríl 2021Fyrsta sala
143.000.000 kr.730 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skildinganes 45

102 Reykjavík · Vatnsmýri
TegundEinbýlishúsStærð250 m²Herbergi9Svefnherb.6Baðherb.3
225.000.000 kr.900 þ./m²

▼ Lækkað 3. september 2026 um 4,0 m.kr. · var 229.000.000 kr.

Byggingarár1975InngangurMargir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2029580Fasteignamat169.650.000 kr.Brunabótamat106.650.000 kr.
Skráð hjá
Viðar BöðvarssonLöggiltur fasteignasali694-1401 · vidar@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑