fasteignasölur.is
Kotabyggð 6
1 af 24

Um eignina

Kotabyggð 6 - Vel skipulagt einbýlishús á stórri eignarlóð í Vaðlaheiði - Stærð 49,6 m²
Eignin er sérlega skemmtilega staðsett gegnt Akureyri í grónu umhverfi.


** Sér aðkeyrsla er frá stofnvegi að húsinu og stendur því eignin nokkuð sér og frá öðrum sumarhúsum á svæðinu.** 

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og lítið geymsluloft. Einnig er geymslupláss undir sólpalli.


Forstofa er með opnu fatahengi og vínylparketi á gólfi. Við hlið forstofu er lítil geymsla
Eldhús er með ágætri innréttingu, með stæði fyrir uppþvottavél, þar er nú þvottavél. Parket er á gólfi. 
Stofa er með skemmtilegum gluggum til vesturs með miklu útsýni. Gengið er út á stóra timburverönd frá stofu. Parket er á gólfi
Svefnherbergin eru tvö, í öðru þeirra er koja. Parket á gólfum.
Baðherbergi er með sturtuklefa, wc og vaski. Opnanlegur gluggi. Dúkur er á gólfi. 

Annað:
- Eignarlóð að stærð 4296,0 m².
- Heitur pottur staðsettur í grónu umhverfi á afar skjólsælum og skemmtilegum stað. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Hvammur Fasteignasala
55.000.000 kr.1109 þ./m²
+37,5% á 1 ári
30. ágúst 2025Þinglýstur kaupsamningur
40.000.000 kr.806 þ./m²
+627,3% á 3 árum
17. júní 2022Þinglýstur kaupsamningur
5.500.000 kr.111 þ./m²
−52,2% á 13 árum
6. maí 2009Fyrsta sala
11.500.000 kr.232 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kotabyggð 6

606 Akureyri (dreifbýli)
55.000.000 kr.1.109 þ./m²
Einbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1992TegundEinbýlishúsStærð49,6 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21604405Fasteignamat39.600.000 kr.Brunabótamat29.450.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑