Um eignina
Íbúðin er öll nýinnréttuð á afar vandaðan og smekklegan máta eftir teikningum Rutar Káradóttur. Innréttingar eru allar sérsmíðaðar úr dökkbæsaðri eik, eldhústæki eru öll frá Miele og Liebherr, blöndunartæki eru öll frá Gessi, innbyggt hljóðkerfi er í loftum, gólfhitakerfi er í allri íbúðinni, innfelld lýsing er í öllum loftum og loftræstikerfi íbúðarinnar, sem er sér fyrir þessa íbúð, er allt nýtt. Innihurðir eru sérsmíðaðar stálhurðir með gleri í.
Húsvörður er búsettur í húsinu, í íbúð sem er í eigu húsfélagsins, og sér hann um daglegan rekstur hússins og viðhald.
Íbúðinni fylgir sér stæði í bílageymslu og hlutdeild í mikilli sameign hússins þar sem m.a. eru sundlaug, heitir pottar, gufubað og líkamsræktarsalur auk búningsklefa með góðri baðaðstöðu. Á jarðhæð hússins er og sameiginlegur veislusalur með eldhúsi og billiardaðstöðu í kjallara auk stórra sameiginlegra geymslna. Á hverri hæð hússins eru setustofur, lagðar náttúrugrjóti, bjartar og rúmgóðar.
Lýsing:
Forstofa, flísalögð og með viðarklæddum veggjum.
Fataherbergi, innaf forstofu er flísalagt og með miklum sérsmíðuðum fataskápum með lýsingu í.
Herbergi I, er til hliðar við forstofu og er flísalagt. Innbyggður skápur í vegg, stórt sérsmíðað skrifborð og föst hilla.
Eldhús, opið við stofur, parketlagt, bjart og rúmgott. Glæsilegar sérsmíðaðar innréttingar með miklu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél, tveimur innbyggðum ofnum og tveimur innbyggðum ísskápum með frystum. Borð inni í skápum í eldhúsinnréttingu eru klædd með kvartsteini og einnig eru skápar klæddir að innan með marmara og speglum. Stór eyja með marmara á borði og hliðum og miklu skápaplássi. Í eyju er spanhelluborð með innbyggðum háfi.
Borðstofa, parketlögð og rúmgóð.
Stofa, parketlögð björt og rúmgóð með miklum gluggum til suðurs, frábæru útsýni og útgengi á stórar og skjólsælar suðursvalir. Svalagólf er ófrágengið, vatns- og raflögn er út á svalir.
Bókastofa, parketlögð og björt með föstum sérsmíðuðum hillum á heilum vegg og fallegu útsýni.
Hjónasvíta, sem gengið er í um stálhurð með gleri í úr holi íbúðarinnar, skiptist þannig:
Gangur, parketlagður og með viðarklæddum veggjum með innbyggðum stórum spegli og flísalagðri súlu.
Hjónaherbergi, mjög stórt, parketlagt með föstum sérsmíðuðum innréttingum á heilum vegg og útgengi á svalir til suðurs. Frábært útsýni til suðurs og vesturs er frá herbergi og svölum.
Fataherbergi, parketlagt og stórt með 6 tvöföldum sérsmíðuðum innbyggðum skápum með lýsingu í og miklum skúffuplássi.
Baðherbergi, sem bæði er gengið í úr forstofu og úr fataherbergi. Flísalagt gólf og veggir, miklar innréttingar með tveimur vöskum, kvartsteini á borðum og hluta veggja, miklum speglaskápum með innbyggðri lýsingu, vegghengdu wc og flísa- og marmaralagðri sturtu með glerjum í. Blöndunartæki eru öll frá GESSI og eru mjög vönduð.
Þvottaherbergi, er innaf baðherbergi, flísalagt gólf og veggir og góð sérsmíðuð innrétting.
Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu þar sem lagt hefur verið fyrir rafhleðslustöð.
Sérgeymsla, 11,1 fermetri að stærð.
Sameiginlegar geymslur í kjallara eru m.a. nýttar undir dekk o.fl.
Sameign hússins er mjög mikil. Á jarðhæð eru m.a. sameiginlegur veislusalur með innréttingum og sameiginleg líkamsræktaraðstaða með búningsklefum, saunu og sturtum. Á hverri hæð hússins eru miklir og rúmgóðir gangar með setustofum.
Lóðin, er fullfrágengin með fjölda bílastæða á malbikuðu plani, hellulögðum stéttum og fallegum gróðri. Baklóðin er öll afgirt og þar er m.a. að finna upphitaða stóra sundlaug og heita potta.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð miðsvæðis í Reykjavík þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu og út á stofnbrautir.
Einstök eign í einstöku húsi.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Efstaleiti 12
Staðsetning
Allar 41 myndir
Upp ↑







































