fasteignasölur.is
Stigahlíð 26
1 af 41

Um eignina

Trausti fasteignasala og Viktoría Larsen löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu glæsilega 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð í Stigahlíð 26, 105 Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnhverbergi, baðherbegi, eldhús og stofu ásamt svölum. Vel hefur verið hugað að húsinu að utan. 

Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands alls 83 fm þar af er íbúðin 75,2 fm og geymsla í sameign 7,8 fm.

Nánari lýsing á eign:
Forstofa: Gengið er inn í litla forstofu með fatahengi. Flísar á gólfi. 
Eldhús: Snyrtilegt með eldri innréttingu ásamt tengi fyrir eldavél og uppþvottavél. Dúkur á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa sem er samliggjandi með borðstofu, auðvelt væri að útbúa auka herbergi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað á snyrtilegan hátt, góð innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn og salerni. Flísalagt.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart. Parket á gólfi.
Svalir: Snúa í vestur. 
Sameign: Sameiginleg hjólageymsla, þvottahús og þurrkherbergi.
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign að stærð 7,3 fm. 

Um er að ræða frábæra eign með góðu skipulagi á þessum vinsæla og eftirsótta stað miðsvæðis í Reykjavík. Örstutt er í alla þjónustu og almennings samgöngur, Kringlan í næsta nágrenni, MH og Verslunarskólinn í göngufæri, skemmtilegar gönguleiðir í Öskjuhlíð og stutt í miðbæ Reykjavíkur. 

Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Viktoría R. Larsen, Löggiltur fasteignasali í síma 6185741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
69.900.000 kr.842 þ./m²
+72,6% á 6 árum
12. nóvember 2020Þinglýstur kaupsamningur
40.500.000 kr.488 þ./m²
+68,8% á 6 árum
27. maí 2014Fyrsta sala
24.000.000 kr.289 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Stigahlíð 26

105 Reykjavík
69.900.000 kr.842 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1961TegundFjölbýlishúsStærð83 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20310231Fasteignamat64.150.000 kr.Brunabótamat43.950.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑