fasteignasölur.is
Grænakinn 17
1 af 37

Um eignina

Eignatorg kynnir: Talsvert endurnýjaða miðhæð og kjallara ásamt bílskúr í tvíbýli. Í dag er eignin innréttuð sem tvær þriggja herbergja íbúðir og vinnustudíó og er eignin í útleigu með mjög góðum leigutekjum. Eignin afhendist þannig við undirritun kaupsamnings. 

Skv. skráningu Fasteignaskrár er íbúð á miðhæð 72 fm, íbúð í kjallara 67,6 fm og bílskúr 34,1 fm. Samtals er eignin því skráð 173,7 fm.

Nánari lýsing:
Íbúð á efri hæð:
Forstofa. Baðherbergi með hvítri innréttingu, baðkari og tengi fyrir þvottavél. Tvö herbergi eru á hæðinni, annað með útg. á svalir. Rúmgóð og björt stofa/borðstofa. Eldhús, hvítri innréttingu, innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og vifta. Stigagati frá stofu sem sést á myndum hefur verið lokað en einfalt að opna aftur.
Íbúð á neðri hæð: Tvö herbergi eru á hæðinni, stofa og eldhús. Baðherbergi með sturtu og hvítri innréttingu, stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúrinn er innréttaður sem vinnustudíó með tveimur vinnurýmum, eldhúsi og góðu baðherbergi.

Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð á undanförnum árum, t.a.m.: 
- Nýtt harðparket 
- Nýjar eldhúsinnréttingar og tæki í öllum eldhúsum
- Nýjar hurðir 
- Baðherbergi á neðri hæð nýlega endurnýjað
- Allar íbúðir málaðar að innan

Frábær staðsetning í rótgrónu hverfi og stutt í alla helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 90.000.-. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Eignatorg
129.900.000 kr.748 þ./m²
+57,5% á 5 árum
24. nóvember 2021Þinglýstur kaupsamningur
82.500.000 kr.475 þ./m²
+27,1% á 1 ári
16. apríl 2021Fyrsta sala
64.900.000 kr.374 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Grænakinn 17

220 Hafnarfjörður
129.900.000 kr.748 þ./m²
Fjölbýlishús5 svefn · 3 bað
Byggingarár1952TegundFjölbýlishúsStærð173,7 m²Herbergi8InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF207500812Fasteignamat99.100.000 kr.Brunabótamat75.250.000 kr.
Skráð hjá
Eignatorg
HeimilisfangSyðsta-Mörk, 861 HvolsvöllurSími510-3500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑