fasteignasölur.is
Skipholt 1 (202)
1 af 42

Um eignina

Miklaborg kynnir: Íbúð 202 við Skipholt 1. Íbúð í fallegu enduruppgerðu lyftuhúsi frá í útjaðri miðborgarinnar. Inngangur frá svalagangi. Forstofa með góðum skápum. Eitt svefnherbergi. Stórt bjart alrými með útgengi á 5,2 fm suðursvalir. Baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Harðparket á gólfum. Íbúðin er skráð 59,4 fm og geymsla í kjallara 5,5 fm. Sameiginlegar þaksvalir á 5. hæð.



Skipholt 1 er glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur á horni Stórholts og Skipholts mót hásuðri. Sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð.

HAF studio kom að hönnun og efnisvali í íbúðirnar. Harðparketi frá Agli Árnasyni , og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél frá AEG.

Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali, hurðar frá Agli Árnasyni, blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél) Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.

Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt.

Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.

Hér er allt sem þarf fyrir nútímalegan miðborgarlífsstíl. Fjöldi veitingastaða og fjölbreytt þjónusta í stuttu göngufæri að ógleymdri útivistarperlunni Klambratúni.


Nánari upplýsingar veitir Steinn Andri Viðarsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is


Skipholt 1 (202)

105 Reykjavík
61.900.000 kr.1.042 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1960TegundFjölbýlishúsStærð59,4 m²Herbergi2InngangurSér innaf svölumLyftaFasteignanúmerF2522282Fasteignamat63.250.000 kr.Brunabótamat36.550.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑