fasteignasölur.is
Brekkuás 25
Opið hús í dag kl. 17:30–18:00
1 af 138

Um eignina

Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Glæsilegt 341 fm einbýlishús á einum fegursta útsýnisstað Áslands við Brekkuás 25, Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að efri hæðin er 115,0 fm, neðri hæðin er 139,5 fm og bílskúrinn 55,8 fm, samtals 310,3 fm skv. Þjóðskrá Íslands en raunstærð eignarinnar er 341 fm. Húsið er byggt árið 2009 og er í mjög góðu ásigkomulagi. Gólfhiti er í öllu húsinu og hiti í plani. Granít er á öllum innréttingum og gluggakistum, nema í eldhúsi þar sem gler er á gluggakistum. Innfelld lýsing er í loftum, aukin lofthæð er í öllu húsinu og hærri hurðar en þykir hefðbundið.

Nánari lýsing: 
Efri hæð: Forstofa með skápum og flísum á gólfi. Björt stofa og borðstofa með parketi á gólfi, þaðan sem útgengt er á rúmgóðar hornsvalir. Glæsilegt, óskert útsýni er úr stofunni og af svölum yfir að náttúru Heiðmerkur í algjöru næði. Eldhús með hvítri háglans innréttingu, granítborðplötu, ofni í vinnuhæð og örbylgjuofni, stæði f. tvöföldum ísskáp og spanhelluborði m/viftu yfir. Flísar eru á gólfi og öll eldhústæki eru frá Miele. Gestasalerni er á hæðinni með veggsalerni, háglans innréttingu og flísum á gólfi og veggjum að hluta. Teppalagður stigi liggur niður úr stofu.
Neðri hæð: Rúmgott hol með parketi á gólfi sem hægt er að nýta sem sjónvarpshol. Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni; þrjú rúmgóð barnaherbergi með skápum og parketi, og glæsilegt hjónaherbergi með fataherbergi inn af og sér baðherbergi með baðkari, flísalagt í hólf og gólf. Einnig er rúmgott sjónvarpsherbergi á hæðinni með hagnýtri geymslu inn af. Úr holi er útgengt á lóð.
Lóð og umhverfi: Lóðin er fullbúin með stimplaðri bomanite-steypu, skjólveggjum, grasverönd og sólpalli. Gert er ráð fyrir heitum potti á lóðinni. Staðsetningin býður upp á einstaka tengingu við náttúruna.  
MULTI-BÍLSKÚR (Heilsurækt og afþreyingarmiðstöð):
Innangengt er í 55,8 fm bílskúrinn úr forstofu. Bílskúrinn er mjög rúmgóður með epoxy á gólfi, hita, rafmagni, vatni og hurðaopnara. Rýminu hefur verið breytt í fyrsta flokks líkamsræktar-, afþreyingar- og tómstundaaðstöðu sem fylgir fullbúin og innifalin í kaupum á eigninni.
Heilsuræktin: Rýmið er búið hágæða tækjum; þar á meðal hlaupabretti af nýjustu gerð og vandaðri róðravél.
Kæliskápar: Í rýminu eru þrír sérhæfðir kæliskápar (einn fyrir rauðvín, einn fyrir hvítvín og einn fyrir bjór) ásamt stórum og hagnýtum amerískum ísskáp.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001  beggi@fasteignasalan.is

Brekkuás 25

221 Hafnarfjörður
269.000.000 kr.788 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 3 bað
Byggingarár2009TegundEinbýlishúsStærð341,3 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23069794Fasteignamat199.300.000 kr.Brunabótamat154.650.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan Bær
HeimilisfangSkútuvogur 10F, 104 ReykjavíkSími512-3400

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 138 myndir

Upp ↑