fasteignasölur.is
Álfheimar 6
1 af 54

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir  fallegt og vel staðsett 80 m2 sumarhús á leigulandi við Álfheima  í Hafnarskógi Akranesi.  Beygt er niður til vinstri rétt áður en komið er að Borgarfjarðarbrúnni, merkt Hafnarskógur og keyrt ca. 300 m niður að sjónum, þar stendur sumarhúsið í götu sem heitir Álfheimar 6. Bústaðurinn stendur vel og er útsýni yfir Borgarfjörð og yfir í Borgarnes. Sumarhúsið er mjög vandað og stendur á steyptri plötu. Húsið er hitað með rafmagni og er gólfhiti í húsinu. Nýleg varmadæla sem hefur lækkað hitunarkostnað mikið. Símahlið inn á svæðið .

Sumarhúsið skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, stofu, borðstofu og eldhús.  Sumarhúsið er skemmtilega skipulagt með fallegum viðarþiljum að innan og glæsilegu opnu eldhúsi með fallegri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél , gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu , helluborð með viftu yfir. Fallegt baðherbergi með walk-in sturtu , vaskur með innréttingu yfir, upphengt salerni , handklæðaofn, og gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Flísar á öllum gólfum og gólfhitakerfi.  Kamína er í stofunni.  Við húsið er stór pallur, og búið er að byggja 15 m2  útihús og litla eldiviðargeymslu. Í anddyrinu er lítil inntaksgeymsla með glugga. Frábært útsýni er úr húsinu yfir Borgarfjörð. Lóðarleiga á ári er um 125.000 kr. 

Í heild sinni er þetta fallegt og mjög vandað sumarhús í frábæru umhverfi rétt við Borgarnes, allar uppl. um húsið veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
49.900.000 kr.624 þ./m²
+49,0% á 5 árum
30. apríl 2021Þinglýstur kaupsamningur
33.500.000 kr.419 þ./m²
+1140,7% á 9 árum
17. apríl 2012Fyrsta sala
2.700.000 kr.34 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Álfheimar 6

301 Akranes (dreifbýli)
49.900.000 kr.624 þ./m²
Sumarhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2013TegundSumarhúsStærð80 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23066185Fasteignamat35.950.000 kr.Brunabótamat52.600.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 54 myndir

Upp ↑