1 af 70
Um eignina
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna einstaklega bjarta og sjarmerandi 62,5 m² 2ja herbergja íbúð við Bragagötu 27 í miðbæ Reykjavíkur. Einstök eign á eftirsóttum stað þar sem sjaldgæft er að finna sérinngang og fallegan sólríkan garð. Hér sameinast fallegt og notalegt íbúðarrými, róleg staðsetning og miðbæjarstemning á eftirsóttum stað í 101 Reykjavík.
Eignin er í fallegu tvíbýlishúsi við Bragagötu 27, á rólegum stað í hjarta Reykjavíkur. Íbúðin nýtur mikillar birtu, er með stórum gluggum og býður upp á notalegt og vel skipulagt íbúðarrými. Hiti er í gólfum í öllum rýmum nema forstofu, baðherbergi og geymslu. Sérinngangur, stór og björt stofa, opið eldhús, rúmgott svefnherbergi og útgengi úr svefnherbergi í glæsilegan og sólríkan sameiginlegan garð. Sameiginlegt bílastæði er með efri hæð hússins.
Nánari lýsing
Forstofa er með flísalögðu gólfi og þaðan er gengið inn í íbúðina.
Geymsla er inn af forstofu, með hillum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Einnig er tengi fyrir þvottavél inni á baðherbergi.
Gangur er með flotuðu gólfi og innbyggðum fataskáp sem gefur gott geymslupláss.
Eldhúsið er opið inn í stofuna og er með snyrtilegri hvítri innréttingu með efri og neðri skápum. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu og ofn er í vinnuhæð. Flot er á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð og stórir gluggar hleypa góðri birtu inn í rýmið. Opið eldhúsið tengir rýmið vel saman og skapar notalegt og félagslegt íbúðarrými.
Svefnherbergið er með flotuðu gólfi og fataskáp. Sérstakur kostur er útgengi úr svefnherberginu út í hinn fallega sameiginlega garð, sem nýtist vel til útiveru og gefur íbúðinni skemmtilegt yfirbragð.
Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og panel á veggjum. Þar er vaskinnrétting með hvítum skáp til hliðar, tengi fyrir þvottavél, sturta og opnanlegur gluggi.
Staðsetning
Eignin er á rólegum og eftirsóttum stað við Bragagötu, í þessu fallega og gamalgróna hverfi miðsvæðis í Reykjavík. Í næsta nágrenni er fjölbreytt þjónusta, verslanir, veitingastaðir, kaffihús og menningarlíf. Þá er stutt í útivistarsvæði og allt það sem miðbærinn hefur upp á að bjóða. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 822 2123 eða á helga@fastlind.is.

Verðsaga
2 þinglýstir kaupsamningarÍ sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
64.900.000 kr.1038 þ./m²
+210,5% á 14 árum
8. október 2012Þinglýstur kaupsamningur
20.900.000 kr.334 þ./m²
+31,4% á 6 árum
10. nóvember 2006Fyrsta sala
15.900.000 kr.254 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Bragagata 27
101 Reykjavík
64.900.000 kr.1.038 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1920TegundFjölbýlishúsStærð62,5 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20076033Fasteignamat58.550.000 kr.Brunabótamat32.100.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 70 myndir
Upp ↑