fasteignasölur.is
Móbergsskarð 8
1 af 68

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir einstaklega vandaða og glæsilega 4.herbergja 155,4 m2 neðri hæð í fjórbýlishúsi með sérinngangi í viðhaldsléttu húsi . Stór 40 m2 verönd með pergólu og heitum potti með fallegu útsýni við Móbergsskarð 8c. Íbúðin er með gólfhita með stýringu í hverju herbergi. Loftskiptikerfi er í íbúðinni. Íbúðinni fylgir sér bílastæði með tengi fyrir rafhleðslustöð. Snóbræðsla er í bílaplani, stiga og veröndinni fyrir framan innganginn inn í íbúðina

Eignin skiptist í forstofu með fataskáp, þrjú svefnherbergi með fataskápum, baðherbergi með vegghengdu salerni og walk-in sturtu með innbyggðum blöndunartækjum. Eldhús og stofa í björtu alrými með stórum gólfsíðum gluggum og útgengi út á stóra verönd með skjólveggjum , flísalögð geymsla innan íbúðar, ásamt þvottahúsi.

Nánari lýsing eignar
Forstofan er rúmgóð með flísalögðu gólfi og fataskáp, sérsmíðuð glæsileg járn/glerhurð frá Formus sem setur mikinn svip á íbúðina.
Eldhúsið er opið inn í stofu með glæsilegri HTH innréttingu með innbyggðum ísskáp með frysti og innbyggðri uppþvottavél. Spanhelluborð með viftu ofaní, ofn með sjálfhreinsibúnaði í vinnuhæð. Stór eyja sem hægt er að sitja við. Cristallo del Mare quartzite steinn frá Steinlausnum. Parket á gólfi.
Stofa-borðstofa með parketi á gólfi og gólfsíðum gluggum, útgengi út á rúmgóða verönd með skjólveggjum, pergólu og heitum potti.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og HTH fataskáp
Barnaherbergin eru tvö með parketi á gólfi og fataskápum frá HTH
Baðherbergi með fallegri HTH innréttingu með marmarastein, flísalagt gólf og veggir, walk-in sturta með innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofn og vegghengdu salerni.
Þvottahús með HTH innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skolvaskur.
Geymsla er innan íbúðar með flísalögðu gólfi.

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

 

Móbergsskarð 8

221 Hafnarfjörður
124.900.000 kr.804 þ./m²
Hæð3 svefn · 1 bað
Byggingarár2024TegundHæðStærð155,4 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF236601710Fasteignamat99.300.000 kr.Brunabótamat85.550.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 68 myndir

Upp ↑