fasteignasölur.is
Lyngheiði 10
1 af 32

Um eignina

Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Gott einbýlishús 188,8 fm með 4 svefnherbergjum, tveim snyrtingum, suður garður, heiturpottur og bílskúr. Húsið stendur miðsvæðis í Hveragerði og í enda botnlanga götu. 

Nánari lýsing: Forstofa, fjögur svefnherbergi, stofa, eldhús, sjónvarpshol, baðherbergi, gestasnyrting, þvottaherbergi og bílskúr.
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Gestasnyrting er inn af forstofu flísalögð í hólf og gólf og með glugga. Eldhús með flísum á gólfi, eldri innrétting og borðkrókur.
Þvottaherbergi er inn af eldhúsi með flísum á gólfi, innréttingu og lúgu upp í þakgeymslu sem er yfir nánast öllu húsinu.
Stofa/borðstofa með parket á gólfi og útgengi út á sólpall í suður. Sjónvarpshol með flísum á gólfi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hornbaðkar með sturtu, innrétting og salerni.
Svefnherbergin eru 4 eitt með fataskápum, tvö með parketi og tvö með kork á gólfum. Bílskúr er rúmgóður og bjartur með geymslulofti yfir hluta skúrsins, tvær gönguhurðar og ein bílskúrshurð með rafmagns opnun.
Húsið hefur verið í góðu viðhaldi: Þakkantur endurnýjaður 2021 á húsi og bílskúr, timburklæðning utan á húsi var endurnýjuð 2021 að stórum hluta, ásamt einum glugga í austur.
Húsið er í enda götunnar og er opið svæði vestan við húsið sem ekki verður byggt á.
Flott eign á góðum stað og stutt í alla þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001   beggi@fasteignasalan.is

 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan Bær
94.500.000 kr.501 þ./m²
+238,1% á 20 árum
14. desember 2006Fyrsta sala
27.950.000 kr.148 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lyngheiði 10

810 Hveragerði
94.500.000 kr.501 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1982TegundEinbýlishúsStærð188,8 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF221073514Fasteignamat97.500.000 kr.Brunabótamat90.950.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan Bær
HeimilisfangSkútuvogur 10F, 104 ReykjavíkSími512-3400

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑