Um eignina
Trausti fasteignasala og Halldór Frímannsson lgf. s: 6605312 erum með til sölu hesthús fyrir 6 hesta. Staðsetningin er einstaklega góð í D-tröðinni á félagssvæði Fáks í Víðidal.
Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 228-9265, birt stærð 51.8 fm.
Nánari lýsing:
Stíur: 4 rúmgóðar stíur eru með járnramma úr ryðfríu stáli. Tvær stíur hvoru megin við gang . Gólfhiti í gangi. Stíurnar rúma 6 hesta.
Kaffistofa: Kaffistofa flísalögð með góðri innréttingu borðkrók og ofni.
Salerni: Salerni er inn af kaffistofu.
Hlaða/Hnakkageymsla: Hnakkageymsla og hlaða eru í sama rými og er það mjög rúmgott með góðri lofthæð.
Gerði: Stórt sameiginlegt gerði með tveimur öðrum einingum.
Annað: Vel við haldin eign. Frábærar reiðleiðir í þesssu rótgróna hverfi. Fín og rúmgóð aðkoma er að húsinu. Mikil veðursæld. Heitt og kalt vatn. Sameiginleg taðþró.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Frímannsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6605312, tölvupóstur halldor@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
D-Tröð 3
Staðsetning
Allar 34 myndir
Upp ↑
































