fasteignasölur.is
Dugguvogur 9
1 af 22

Um eignina

Helgafell fasteignasala og Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali kynna bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð með sér inngangi á 1.hæð auk bílastæði í bílakjallara við Dugguvog 9 í Reykjavík.

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og parketi á gólfi. 
Stofa/borðstofa er björt með parketi á gólfi. Útgengi á yfirbyggðar svalir.
Eldhús með rúmgóðri innréttingu, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, span helluborði og parketi á gólfi. 
Svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi með góðu skápaplássi, walk in sturtu, upphengt salerni.
Tengi fyrir þvottavél og þurrkara innan íbúðar.
Geymsla er 11,1m í kjallara.
Bílastæði í bílakjallara fylgir eigninni og er innangengt úr bílakjallara í lyftu- og stigahús.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Innréttingar frá GKS, parket frá Birgisson. Um er að ræða vandað og viðhaldslítið hús byggt af ÞG Verk.

Falleg eign í Vogabyggð, stutt í skemmtilegar gönguleiðir við sjávarsíðuna. Hjóla- og göngustígar liggja liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. 

Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit yfir eignina 

**Kemur til greina skipti á 4ra herbergja íbúð í Grafarvoginum, helst í Víkur, Borga og Engja hverfi**

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali
s. 868 7048 / linda@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Helgafell Fasteignasala
63.900.000 kr.923 þ./m²
+1,6% á 2 árum
5. júní 2024Fyrsta sala
62.900.000 kr.909 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Dugguvogur 9

104 Reykjavík
63.900.000 kr.923 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2023TegundFjölbýlishúsStærð69,2 m²Herbergi2InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF251659925Fasteignamat64.700.000 kr.Brunabótamat53.640.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑