fasteignasölur.is
Fornistekkur 10
1 af 88

Um eignina

LIND fasteignasala kynnir fallegt og vel skipulagt einbýli á einni hæð með bílskúr við Fornastekk 10 í Reykjavík. Fjögur svefnherbergi, stórar, samliggjandi stofur með mikilli lofthæð, stórt og bjart eldhús og sér þvottahús. Baðherbergi og gestasnyrting. Stór sólstofa er fyrir framan stofur þaðan sem útgengt er á skjólgóðan og glæsilegan pall sem hannaður var af Stanislav Bohic. Heitur pottur og útisturta. Þakið var málað 2025. Húsið stendur innst í lokuðum botnlanga í rólegu og fjölskylduvænu hverfi. Frábær staðsetning þaðan sem stutt er í fallegar gönguleiðir og alla helstu þjónustu. Áætlað fasteignamat 2027: 144.800.000 kr.

Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Gestasnyrting: Inn af forstofu. Dúkur á gólfi, handlaug, salerni.
Svefnherbergi 1: Inn af forstofu. Parket á gólfi, fataskápur. Gluggi opnast inn í sólstofu. 
Einnig er lítið herbergi inn af forstofu, parket á gólfi, opnanlegur gluggi. 
Eldhús: Rúmgott og bjart, dúkur á gólfi, hvít innrétting með góðu skápaplássi. 
Þvottahús: Inn af eldhúsi. Flísar á gólfi, borðplata með skolvaski, sturta, fataskápur. Útgengt er úr þvottahúsi út í garð.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi í opnu, björtu rými með mikilli lofthæð. Parket á gólfi, arinn. Stórir gluggar beggja vegna setja svip sinn á rýmið.
Sólstofa: Parket á gólfi. Útgengi á skjólgóðan og glæsilegan pall með heitum potti og útisturtu. 
Hjónaherbergi er með sér fataherbergi inn af. Parket á gólfi. 
Svefnherbergi 3: Parket á gólfi. 
Svefnherbergi 4: Parket á gólfi, fataskápur. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, innrétting með handlaug, baðkar, upphengt salerni, opnanlegur gluggi.
Bílskúr: Steypt gólf, heitt og kalt vatn, opnanlegur gluggi. Hiti er í bílastæðum.
Geymsla er fyrir aftan bílskúr, innangengt úr sólstofu. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is


Framkvæmdir undanfarin ár að sögn seljenda: 
2025 Þak málað og viðgerðir framkvæmdar á skorsteini.
2019 Timbur í gólfi og veggjum á palli endurnýjað.
2019 Gluggar pússaðir að utan og málaðir.
2019 Hús málað að utan.
2019 Hluti ofnalagna endurnýjaður: Í sólstofu, suðurhluta stofu og stærra forstofuherbergi.
1998 Þakjárn endurnýjað. Þak lengt fram yfir sólstofu. Þaki lyft á bílskúr (nýtt þak sett ofan á eldra þak). 
1998 Gler í sólstofu endurnýjað (að frátöldum opnanlegum fögum), einnig á svefnherbergisgangi og í bílskúr.
1998 Sturta í þvottahúsi endurnýjuð og flísalögð.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 

Fornistekkur 10

109 Reykjavík
144.900.000 kr.659 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1971TegundEinbýlishúsStærð220 m²Herbergi5InngangurTveir inngangarBílskúrFasteignanúmerF204715550Fasteignamat147.400.000 kr.Brunabótamat112.480.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 88 myndir

Upp ↑