fasteignasölur.is
Furuhlíð 7
1 af 72

Um eignina

LIND fasteignasala kynnir fallegt og vel skipulagt endaraðhús með bílskúr við Furuhlíð 7 í Hafnarfirði. Húsið er teiknað af Vífli Magnússyni. Tvö stór svefnherbergi, stór stofa með mikilli lofthæð, borðstofa, eldhús og sér þvottahús. Tvö baðherbergi. Möguleiki er á að breyta skipulagi og fjölga svefnherbergjum. Í stofunni er fallegur arinn hannaður af Vífli sem setur svip sinn á stofuna og gefur húsinu tignarlegt yfirbragð. Flísar og gegnheilt parket á gólfum. Útgengt úr borðstofu í fallegan, gróinn garð með skjólgóðum palli. Falleg og vönduð eign í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þaðan sem stutt er í fallegar gönguleiðir og alla helstu þjónustu.

Neðri hæð:
Forstofa: Flísar á gólfi og stór fataskápur.
Baðherbergi inn af forstofu: Flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi, handlaug, salerni og geymsluskápur.
Stofa: Parket á gólfi, mikil lofthæð með innfelldri lýsingu, fallegur arinn og flísalagt framan við eldstæðið.
Borðstofa: Flísar á gólfi og útgengt á verönd og garð. Hiti í gólfi.
Eldhús: Flísar á gólfi, hiti í gólfi bæði á eldhúsi og borðstofu, hvít innrétting með góðu geymsluplássi. Rafmagns- og gashelluborð, tengi fyrir uppþvottavél og pláss fyrir tvöfaldan ísskáp.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og stór fataskápur. Herbergið er stórt og er möguleiki að skipta því upp í tvö herbergi.
Þvottahús: Flísar á gólfi, innrétting og vélar í vinnuhæð.

Efri hæð:
Hol/Stigapallur: Parket á stiga og stigapalli.
Hjónaherbergi: Flísar á gólfi, stór fataskápur, útgengi á kvöldsvalir.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, baðkar, salerni, tvær handlaugar. Opnanlegur gluggi.

Bílskúr: Flísar á gólfi, rafmagnshurðaopnari og óskráð geymsluloft. Vaskur með heitu og köldu vatni. Innangengt í gegnum þvottahús.

Garður er gróinn og fallegur. Stórt hellulagt bílaplan með snjóbræðslu.
Vífill Magnússon teiknaði húsið.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 
 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
143.000.000 kr.812 þ./m²
+197,9% á 11 árum
25. september 2015Þinglýstur kaupsamningur
48.000.000 kr.272 þ./m²
−7,5% á 8 árum
13. september 2007Fyrsta sala
51.900.000 kr.295 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Furuhlíð 7

221 Hafnarfjörður
143.000.000 kr.812 þ./m²
Rað-/parhús2 svefn · 2 bað
Byggingarár1993TegundRað-/parhúsStærð176,2 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF207488459Fasteignamat134.100.000 kr.Brunabótamat113.600.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 72 myndir

Upp ↑