fasteignasölur.is
Hafnarstræti 27A
1 af 29

Um eignina

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Hafnarstræti 27A Flateyri - Vel staðsett einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara, gott útsýni inn Önundarfjörðinn. Möguleiki á að nýta eignina sem tvær aðskildar íbúðir.
Á miðhæð er aðalinngangur, forstofa, stofa, eldhús, bað og svefnherbergi. Á efri hæð er, gangur, þrjú svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Í kjallara er gott geymslurými.


Nánari lýsing:
Miðhæð:

Aðalinngangur að aftanverðu, komið inn í forstofu og stigagang.
Gangur með harðparketi á gólfi. Baðherbergi með sturtu, dúkur á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu, harðparket á gólfi.
Inn af eldhúsi er svefnherbergi með harðparketi.
Tvískipt stofa, borðstofa og setustofa með harðparketi á gólfi.

Efri hæð:
Stigi úr forstofu upp á efri hæð.
Komið inn í gang með parketi á gólfi. 
Baðherbergi með sturtu, dúkur á gólfi, tengi fyrir þvottavél. 
Eldhús með hvítri innréttingu, parket á gólfi.
Þrjú ágæt svefnherbergi með parketi á gólfum.

Kjallari:
Kjallari er nýttur sem geymsla, inngangur í gegnum hurð undir tröppum, ágæt lofthæð.



 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasala Vestfjarða
35.900.000 kr.180 þ./m²
+199,2% á 8 árum
12. október 2018Fyrsta sala
12.000.000 kr.60 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hafnarstræti 27A

425 Flateyri
35.900.000 kr.180 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1929TegundEinbýlishúsStærð199,2 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21264741Fasteignamat25.350.000 kr.Brunabótamat68.500.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Vestfjarða
HeimilisfangHafnarstræti 19, 400 ÍsafjörðurSími456-3244

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑