fasteignasölur.is
Sjónarvegur 3
1 af 33

Um eignina

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Rúmgóða, fallega og bjarta þriggja herbergja endaíbúð með sérinngangi í nýlegu (2020) litlu fjölbýli við Sjónarveg 3 í Urriðaholtinu, Garðabæ. Eigninni fylgir rúmgóður sólpallur í suðurátt. Frábær staðsetning á þessum vinsæla stað í Urriðaholtinu, í nálægð við skóla, leikskóla, þjónustukjarnann í Kauptúni og falleg útivistarsvæði.

- Gott aðgengi að íbúðinni
- Sérinngangur
- Rúmgóður sólpallur í suðurátt
- Útsýni

Íbúðin er skráð 107,2 fm skv. HMS. 


Nánari lýsing: 
Flísalögð forstofa með góðum fataskápum. 
Hol/gangur
Opið bjart alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Gluggar í þrjár áttir. 
Eldhús með eyju sem hægt er að sitja við. Vandaðar innréttingar frá HTH, kvartssteinn á borðum. Flísar á milli efri og neðri skápa. Heimilistæki eru frá AEG.
Frá borðstofu er útgengt á rúmgóða verönd með góðum skjólveggjum sem snýr í suðurátt. 
Björt og rúmgóð stofa með útsýni. 
Hjónaherbergi með fataherbergi.
Svefnherbergi með fataskáp. 
Baðherbergi með innréttingu með kvartssteinn á borði. Upphengt salerni og ,,walk-in'' sturta. Handklæðaofn.
Sér þvottaherbergi með flísum á gólfi. 
Sér geymsla í sameign og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Innanhússráðgjöf var frá HAF STUDIO. Fallegt ljóst fiskibeinaparket á gólfum í alrými og herbergjum. Ljósar flísar í votrýmum. Allar innréttingar eru frá HTH. Innréttingar í eldhúsi og baðherbergi eru grálakkaðar en fataskápar eru hvítlakkaðir. Borðplötur eru úr ljósum kvartsstein. 

Um er að ræða glæsilega íbúð í vönduðu áklæddu húsi á frábærum stað í Urriðaholtinu í Garðabæ. 

Allar nánari upplýsingar veitir Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is 

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Hraunhamar
96.900.000 kr.904 þ./m²
+76,5% á 6 árum
16. desember 2020Fyrsta sala
54.900.000 kr.512 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sjónarvegur 3

210 Garðabær
96.900.000 kr.904 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2020TegundFjölbýlishúsStærð107,2 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF250004816Fasteignamat88.700.000 kr.Brunabótamat71.600.000 kr.
Skráð hjá
Hraunhamar
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑