fasteignasölur.is
Lómasalir 6
1 af 122

Um eignina

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **  

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg, björt og vel skipulögð 122,1 m2, 4ra herbergja endaíbúð með fallegu útsýni á 3.hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Lómasali 6 í Kópavogi. Eignin er skráð 122,1 m2 þar af íbúð 113,4 m2 og geymsla 8,7 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofu, gang, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í sameign á jarðhæð. Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni. 
Eignin er staðsett í fjölskylduvænu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í nágrenninu eru grunnskóli, leikskóli, sundlaug, íþróttasvæði og fallegar gönguleiðir við náttúrusvæði.

Endurbætur samkvæmt seljanda: Á síðustu 2-4 árum var baðherbergið endurnýjað, sett nýtt parket á íbúðina og settir nýir frontar á eldhúsinnréttingu og fataskápa í hjónaherbergi.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax


Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og stórum fataskápum.
Gangur er með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru saman í rúmgóðu opnu rými með parketi á gólfi. Úr rýminu er gengið út á stórar svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni.
Eldhús er með L-laga innréttingu. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, bakaraofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Opið er inn í eldhúsið úr borstofu og af gangi. 
Svefnherberg nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherberg nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fatahengi ásamt skúffum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni, handklæðaofn, innrétting og sturta. Innbyggð tæki eru í sturtu.
Þvottahús er með vinnuborði og skápum, flísar á gólfi.
Sérgeymsla með hillum er í sameign á jarðhæð. Er skráð 8,7 m2.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og dekkjageymsla er á jarðhæð hússins.
Bílastæði í bílageymslu með aðgengi frá lyftu - stigahúsi. Sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.

Leikvöllur fyrir börn er í garðinum með rólum og rennibraut.

Verð kr. 93.400.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Lómasalir 6

201 Kópavogur
93.400.000 kr.765 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2002TegundFjölbýlishúsStærð122,1 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF22535528Fasteignamat88.550.000 kr.Brunabótamat72.930.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Mosfellsbæjar
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 122 myndir

Upp ↑