fasteignasölur.is
Edenmörk 5
1 af 24

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í fallegu og fjölskylduvænu hverfi í Hveragerði.
  • Fjölskylduvænt hverfi með leikvelli, gróðurhúsum og stutt í alla helstu þjónustu.
  • Björt jarðhæðaríbúð með beinu aðgengi út á verönd og sameiginlegan garð.
  • Fallegt og bjart alrými með stórum gluggum og vandaðri eldhúsinnréttingu.
  • Þrjú rúmgóð svefnherbergi, sérgeymsla og sérmerkt bílastæði.

Nánari upplýsingar veita:
Andrea Ósk Harradóttir astmf. í  S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is


www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar er 80m² samkv. HMS.

Eignin skiptist í forstofu, bjart alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, þrjú góð svefnherbergi, baðherbergi, sérgeymslu í sameign og sérmerkt bílastæði.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísalögð forstofa með góðum fataskáp.
Eldhús: Falleg og tímalaus eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og vönduðum heimilistækjum. Eldhúsið er opið við stofu og borðstofu og myndar bjart og notalegt alrými.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými með stórum gluggum sem hleypa inn mikilli dagsbirtu. Gott pláss er fyrir setustofu og borðstofu. Útgengt er út á hellulagða verönd og sameiginlegan garð.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp.
Svefnherbergi I: Bjart og rúmgott herbergi með fataskáp.
Svefnherbergi II: Bjart svefnherbergi sem hentar vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuaðstaða.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni, snyrtilegri innréttingu og þvottaaðstöðu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Pálsson fasteignasala
59.900.000 kr.749 þ./m²
+30,5% á 5 árum
17. desember 2021Fyrsta sala
45.900.000 kr.574 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Edenmörk 5

810 Hveragerði
59.900.000 kr.749 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2022TegundFjölbýlishúsStærð80 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF25009084Fasteignamat56.550.000 kr.Brunabótamat50.100.000 kr.
Skráð hjá
Pálsson fasteignasala
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑