fasteignasölur.is
Tjarnabraut 14
1 af 32

Um eignina

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu: Virkilega bjarta og fallega 4 herbergja endaíbúð á annari hæð í snyrtilegu fjölbýli rétt við Akurskóla og leikskóla. Aðeins um 20 mínútur frá höfuðborgarsvæði. Tjarnabraut 14, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 02-08, fastanúmer 228-9929 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð 122 fm hjá FMR.

Eignin hefur þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi með góðum klæðaskápum og fallegu hafútsýni. Alrými hefur eldhús, borðstofu og stofu, er bjart með stórum gluggum og útgengt er út á 12 fm sólríkar svalir. Baðherbergi hefur glugga, baðkar með sturtu og góða aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Gólfefni, flæðandi harðparket, engir þröskuldar frá alrýmum í herbergi. Hússjóður stendur vel og góð nágranna samstaða. Sér geymsla með glugga fylgir íbúðinni og góð vagna og hjólageymsla er í sameign. Virkilega snyrtileg eign.

BÓKAÐU SKOÐUN:
Unnur Svava Sverrisdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 868-2555, tölvupóstur unnur@allt.is.


Nánari lýsing eignar:
Eldhús: Hefur hvíta innréttingu með dökkri borðplötu og góð eldhústæki
Stofa: Er opin við eldhús og borðstofu með útgengi út á sólríkar 12 fm svalir.
3 svefnherbergi: Virkilega rúmgóð svefnherbergi með hvítum klæðaskápum og fallegu hafútsýni
Baðherbergi/þvottahús: Hefur dökkar físar á gólfum og ljósar veggflísar við sturtubaðkar. Hvít vaskinnrétting með dökkri borðplötu, efri skáp og upplýstum spegli. Innbyggð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara með dökkri borðplötu yfir.

Umhverfi: Eignin er virkilega vel staðsett hvað varðar skóla, leikskóla, bókasafn, sundlaug, verslun, bakarí, útivistarsvæði og útileikvelli. Allt í göngufæri og aðeins 20 mínútur frá höfuðborgarsvæði og 7 mínútur frá alþjóðaflugvelli.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 

Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · ALLT fasteignasala
61.900.000 kr.507 þ./m²
+58,7% á 5 árum
28. september 2021Þinglýstur kaupsamningur
39.000.000 kr.320 þ./m²
+72,8% á 13 árum
11. febrúar 2009Fyrsta sala
22.570.000 kr.185 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Tjarnabraut 14

260 Njarðvík
61.900.000 kr.507 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2008TegundFjölbýlishúsStærð122 m²Herbergi4FasteignanúmerF22899297Fasteignamat67.450.000 kr.Brunabótamat66.350.000 kr.
Skráð hjá
ALLT fasteignasala
HeimilisfangReykjanesbær - Mosfellsbær - Grindavík, 240Sími560-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑