fasteignasölur.is
Smyrilshlíð 14
1 af 34

Um eignina

Guðrún Antonsdóttir fasteignasali S 621 2020 og Lind fasteignasala kynna:
Björt, falleg og einstaklega vel skipulögð nýleg 4ra herbergja íbúð á 3.hæð ásamt bílskúr í bílastæðahúsi með rúmgóðu bílastæði fyrir framan. Leyfi er fyrir svalalokun. Svalir snúa til suðurs.
Fallegur kvarts steinn frá S.Helgasyni er á borðum, milli skápa og á hliðum innréttingar og eyju í eldhúsi. Bókið skoðun. 621 2020 eða gudrun@fastlind.is

Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Auk bílskúrs með bílastæði fyrir framan

Nánari lýsing:
Forstofan er mjög rúmgóð, með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús með vandaðri hvítri Nobilia innréttingu frá GKS með efri og neðri skápum.Vönduð eldhústæki, sjálfhreinsandi bakaraofn í vinnuhæð og sér combi ofn, sem er bæði bakaraofn og örbylgjuofn. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur. Span helluborð með innbyggðum gufugleypi. Fallegur kvarts steinn frá S.Helgasyni er á borðum, milli skápa og á hliðum innréttingar og eyju.
Stofan er björt og opin inn í eldhús. Parket á gólfi. Gengið er út á rúmgóðar sólríkar svalir frá stofu sem snúa til suðurs inn í stóran inngarð.
Svefnherbergin eru þrjú, öll mjög rúmgóð með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergið er með góðri innréttingu undir handlaug, walk in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og flísum á gólfi og veggjum. Blöndunartæki eru vönduð og öll frá Tengi.
Þvottahús er innan forstofu með flísum á gólfi. Stálvaskur og gluggi með opnanlegu fagi.
Sérgeymsla er innan bílskúrs

Bílskúr 23,6fm, er inn í lokuðu bílastæðahúsi. Sjálfvirkur hurðaopnari og  vaskur með heitu og köldu vatni. Búið að leggja fyrir uppsetningu á hleðslukerfi fyrir rafbíla. Bílskúrinn er á góðum stað í bílakjallaranum en gengið er inn í stigaganginn við hliðina á bílskúrnum. Bílastæðið fyrir framan bílskúrinn er einstaklega rúmgott og notar núverandi eigandi það fyrir tvo bíla.

Garður: Glæsilegur og vel hannaður sameiginlegur garður er í húsinu með fjölbreyttum leiktækjum, æfingartækjum, bekkjum og grænum svæðum.
 
Samkvæmt fasteignamati ríkisins er íbúð á hæð skráð 118,5fm, geymsla 6,3 fm og bílskúr 23,6. Samtals 148,4 fm, ásamt bílastæði fyrir framan bílskúr

Seljendur/Kaupendur mínir fá Vildarkort Lindar.  Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: 
Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Vodafone.


Frekari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali í síma
621-2020 eða á gudrun@fastlind.is
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
129.900.000 kr.875 þ./m²
+9,3% á 4 árum
19. maí 2022Fyrsta sala
118.900.000 kr.801 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Smyrilshlíð 14

102 Reykjavík
129.900.000 kr.875 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2022TegundFjölbýlishúsStærð148,4 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF25126847Fasteignamat117.050.000 kr.Brunabótamat90.350.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑