fasteignasölur.is
Lynggata 2
1 af 25

Um eignina

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:
Fallega, bjarta og vel skipulagða 99,6 fm 3ja herbergja íbúð með sérmerktu stæði í lokaðri bílageymslu í snyrtilegu fjölbýli við Lynggötu 2 í Garðabæ. 
Sér afnotareitur er að framanverðu við íbúðina sem eykur notagildi eignarinnar og gefur skemmtilega tengingu við útisvæði. Íbúðin er á fjölskylduvænum stað með leiksvæði fyrir utan húsið og fallegu útisvæði í næsta nágrenni. Stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu og fallegar gönguleiðir.

Ásett verð: Krónur 84.700.000.- 
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala
Sími: 661 7788
Netfang: bo@stofnfasteignasala.is


*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*

*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*


Sölupunktar eignar:
• Björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð
• Sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu
• Byggð árið 2017
• Góð staðsetning í fjölskylduvænu hverfi
• Stutt í skóla, leikskóla, þjónustu og útivist
• Góðar samgöngur og ný tenging frá Urriðaholti út á Flóttamannaveg

Eignin skiptist í:
Forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, sérgeymslu og sérmerkt stæði í bílageymslu.

Nánari lýsing:
Forstofa:
Snyrtileg forstofa með góðu skápaplássi, flísar á gólfi.
Eldhús:
Fallegt og vel skipulagt eldhús með snyrtilegri innréttingu og góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél eru í eldhúsi. Eldhúsið er í opnu og góðu flæði við stofu og borðstofu, parket á gólfi.
Stofa/borðstofa:
Bjart og rúmgott alrými með góðri birtu, notalegu flæði og útgengi á stórar svalir. Fallegt gólfefni er á rýminu sem gefur íbúðinni hlýlegt og snyrtilegt yfirbragð.
Hjónaherbergi:
Mjög rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðu skápaplássi. parket á gólfi.
Svefnherbergi:
Gott svefnherbergi með parket á gólfi, herbergið nýtist vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuaðstaða.
Baðherbergi:
Snyrtilegt baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Þar er góð innrétting, handlaug, salerni, sturta með glervegg og handklæðaofn.
Þvottahús:
Þvottahús er innan íbúðar.
Sérgeymsla:
Sérgeymsla fylgir eigninni.
Sameign / hjóla- og vagnageymsla:
Sameign er snyrtileg og þar er m.a. sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílageymsla:
Sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni.

Staðsetning:
Staðsetning eignarinnar er mjög góð í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Garðabæ. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og helstu þjónustu, auk þess sem falleg náttúra, góðar gönguleiðir og Urriðavatn eru í næsta nágrenni.
Samgöngur á svæðinu hafa jafnframt tekið framförum með nýrri tengingu frá Urriðaholti út á Flóttamannaveg, sem eykur aðgengi og bætir flæði til og frá hverfinu.

Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala, í síma 661 7788 eða á netfanginu bo@stofnfasteignasala.is.
Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.

Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · STOFN - Fasteignasala ehf.
84.700.000 kr.850 þ./m²
+63,7% á 6 árum
26. janúar 2021Þinglýstur kaupsamningur
51.750.000 kr.520 þ./m²
+29,4% á 3 árum
12. apríl 2018Fyrsta sala
40.000.000 kr.402 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lynggata 2

210 Garðabær
84.700.000 kr.850 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2017TegundFjölbýlishúsStærð99,6 m²Herbergi3InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF23663844Fasteignamat86.900.000 kr.Brunabótamat86.720.000 kr.
Skráð hjá
STOFN - Fasteignasala ehf.
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími511-0900 / 661-7788

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑